Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Fyrir leik
Víkingur R.
Víkingskonur róa lífróður þessa dagana en þær sitja á botni deildarinnar með 11 stig. Tveimur stigum á eftir Val í 9. sætinu og fimm stigum á eftir Fram í 8. sætinu.

Liðið hefur unnið þrjá leiki og var það í byrjun sumars, gegn Stjörnunni, Fram og kom síðasti sigurleikurinn gegn Þór/KA þann 30. maí sl. frá þeim tíma hafa þær náð í tvö jafntefli, 1-1 gegn Grindavík/njarðvík í júní og svo gegn Þrótti í lok júlí.

Þær mættu Þór/KA í síðustu umferð þar sem þær steinlágu 0-3 á eigin heimavelli. Nú mæta þær FH liðinu sem tapaði illa í síðasta leik og það er spurning hvort Víkingskonur geti notfært sér það.

Það er stutt á milli í fallbaráttunni og hvert stig og/eða mark skorað og fengið á sig getur skipt sköpum þegar búið er að telja öll stigin upp úr pokanum!


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH
FH konur sitja fyrir þennan leik í 2. sætinu með 33 stig, þremur stigum minna en Breiðablik sem tapaði stigum í gær. FH á því aftur séns á því að komast á toppinn ef þær vinna í dag.

FH konur lutu heldur betur í lægra haldi fyrir einmitt Breiðablik 0-3 í síðasta leik sem þó var frestaður leikur úr 15. umferðinni. Þar sá FH liðið lítið til sólar og var ólíkt sjálfu sér en þetta var fyrsti leikur þeirra í sumar þar sem þær náðu ekki að skora.

Eftir leikinn kom svo í ljós að besti leikmaður liðsins, Ída Marín Hermannsdóttir er farin til Hammarby og skilur eftir sig stórt skarð. Það er því spurning hvernig FH liðið mætir til leiks í dag? örlítið brotnar eftir síðasta leik og nýjustu tíðindi eða mæta þær dýrvitlausar? Guð hjálpi Víkingum ef sá háttur er á þeim!


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins!
Á flautunni í kvöld verður Ásmundur Þór Sveinsson og honum til halds og trausts verða Óliver Thanh Tung Vú og Pálmi Víðir Bjarnason aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er Elmar Svavarsson og eftirlitsmaður í kvöld er Sigursteinn Árni Brynjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá Kaplakrikavellinum þar sem FH tekur á móti Víking R. í 17. umferð Bestu deildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 18:00!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.