Fyrir leik
0-0 lestin og Youtube
Fyrir leik
4 stig í síðustu fimm leikjum
Það hefur ekki gengið sérstaklega vel hjá Fylki í síðustu leikjum. Fylkismenn töpuðu síðasta leik sínum gegn Þrótti, 3-1. Í síðustu fimm leikjum fóru þeir tvisvar sinnum í heimsókn í Breiðholtið og töpuðu tvisvar, gegn Leikni og ÍR. Í síðasta heimaleik sínum fengu þeir Aftureldingu í heimsókn, hann endaði 3-3.
Eini sigur Fylkis í síðustu fimm leikjum kom gegn Völsungi, sem er í fallbaráttu. Fylkir þurfti þó að hafa fyrir sigrinum og skoraði þrjú mörk á síðustu 17 mínútum leiksins eftir að Völsungur hafði komist yfir snemma í síðari hálfleik.
Fylkir situr engu að síður í 3. sæti deildarinnar með 34 stig. Það er því ljóst að Fylkismenn þurfa á sigri að halda í dag ef þeir vilja vera í baráttunni um fyrsta sætið.

Spáin
Fylkir 0 - 0 Grindavík
,,Ráðfærði mig við dáðasta son Grindavíkur, Sigurjón Rúnarsson sem handviss var um það að bróðir sinn fengi ekki mark á sig í þessum leik. Grindavík gert sex markalaus jafntefli í sumar og verður þetta það sjöunda sem hlýtur að vera met, hvað segir Víðir Sig?"

Dómaratríóið
Pétur Guðmundsson er með flautuna. Þráinn Jón Elmarsson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage verða með flöggin.

Fyrir leik
Velkomin á Tekk völlinn!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Fylkis og Grindavíkur í 20. umferð Lengjudeildar karla.

Síðasti leikur Grindavíkur endaði 0-0, gegn Gróttu á heimavelli. Þar áður hafði Grindavík tekið á móti Þrótti og unnið 2-1 sigur. Fylkir tapaði í síðasta leik gegn Þrótti 3-1 á úti velli.
Grindavík fékk skemmtilegan gest í heimsókn þegar Grótta kom í heimsókn, en upp í stúku var Ellis Platten, maðurinn á bak við vinsælu YouTube-rásina Away Days. Platten ferðast um heiminn í leit að áhugaverðum fótboltaleikjum og sýnir frá stemningunni í kringum leikina.