Í BEINNI
Besta karla
Víkingur R.
LL
2
0
0
Valur

Víkingur R.
2
0
Valur

Valdimar Þór Ingimundarson
'49
1-0
Aron Baldvin Þórðarson
'64
Helgi Guðjónsson
'69
2-0
23.08.2026 - 19:15
Víkingsvöllur
Besta karla
Aðstæður: Sól og létt gola, frábært veður fyrir fótbolta
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Maður leiksins: Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Víkingsvöllur
Besta karla
Aðstæður: Sól og létt gola, frábært veður fyrir fótbolta
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Maður leiksins: Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
6. Gunnar Vatnhamar
('89)
('89)
8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson (f)
('77)
('77)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
('72)
('72)
25. Valdimar Þór Ingimundarson
70. Hrannar Snær Magnússon
('72)
('72)
77. Stígur Diljan Þórðarson
('89)
- Meðalaldur 27 ár
('89)
Varamenn:
99. Uggi Jóhann Auðunsson (m)
11. Daníel Hafsteinsson
('77)
('77)
15. Róbert Orri Þorkelsson
('89)
('89)
18. Daði Berg Jónsson
('89)
('89)
21. Aron Elís Þrándarson
('72)
('72)
30. Sveinn Margeir Hauksson
69. Ármann Ingi Finnbogason
('72)
- Meðalaldur 24 ár
('72)
Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (AÞ)
Hajrudin Cardaklija (MÞ)
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.)
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ)
Kári Sveinsson (Styrktarþj.)
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.)
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.)
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Aron Baldvin Þórðarson ('64)
Skýrslan: Víkingar kveðja Gunnar sem spilaði eins og kóngur í ríki sínu
|
Hvað réði úrslitum?
Víkingarnir voru góðir í dag og Valsarar héldu bara ekki í við þá. Þrátt fyrir að það hafi verið markalaust eftir fyrri hálfleikinn voru Víkingar betri aðilinn en Valsarar náðu þó að skapa sér stöður en lítið af dauðafærum. Víkingar komu svo beittari út í þann seinni og þá var þetta aldrei spurning. Ótrúlegur munur svo á skiptingum sem liðin gátu gert og eftir að Víkingarnir náðu inn fyrsta markinu í byrjun seinni var þetta aldrei spurning.
Bestu leikmenn
1. Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Spilaði eins og kóngur í ríki sínu í dag í sínum loka leik í Víkinni. Þvílíkur leikmaður sem hann er og hefur reynst þessu liði mikill happafengur. Risastórt skarð sem hann skilur eftir sig og það verður áhugavert að sjá hvernig Víkingarnir tækla það. Kveður þessa deild sem einn albesti leikmaður hennar og erfitt að tala um mann í manns stað í þessu tilfelli.
2. Hrannar Snær Magnússon (Víkingur R.)
Spilaði vel í dag og lagði upp tvö mörk í sínum fyrsta byrjunarliðsleik hjá Víking. Ótrúlegur kraftur sem fylgir honum sem er einmitt það sem Víkinga vantaði á þessum tímapunkti. Fleiri leikmenn sem spiluðu vel í dag og gerðu tilkall en Stígur Diljan og Valdimar Þór voru báðir góðir í dag sem dæmi.
Atvikið
Fyrsta mark Víkinga fór langt með að klára þennan leik, maður hafði það allavega aldrei á tilfinningunni að Valsarar myndu fá eitthvað út úr þessum leik eftir það. Voru búnir að vera ofan á í fyrri hálfleik án þess að ná að skila boltanum í markið en setja strax tóninn í seinni með marki á 49. og klára þetta fagmannlega eftir það.
|
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar halda KR og Fram í góðri fjarlægð frá sér og fara í 51 stig og eru nokkuð þægilegir á toppnum eins og sakir standa. Næsti leikur í deildinni er einmitt gegn KR en sigur þar gæti farið ansi langt með að klára þetta. Valsarar eru heldur betur í holu og sitja í 8. sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir af mótinu áður en tvískipting hefst. Þeir eiga Keflavík og ÍA í þessum tveimur leikjum sem eru lið sem eru að berjast um þessi tvö síðustu sæti í efri hlutann við þá en það verður algjör skandall fyrir Knattspyrnufélagið Val að spila í neðri hlutanum, það held ég að sé óumdeilt.
Vondur dagur
Tryggvi Hrafn Haraldsson og Jónatan Ingi Jónsson, sem tveir allra bestu menn þessa Valsliðs, gerðu afskaplega lítið í dag. Voru báðir hálfvanstilltir fannst mér og áttu misheppnaðar sendingar þegar þeir voru komnir í góðar stöður. Ragir við að keyra á mennina sína og sneru við þegar þeir voru búnir að skilja varnarmenn Víkings eftir sem dæmi. Ef að Valur ætlar að klára þetta tímabil með sæmd að þá verða þessir tveir að draga vagninn sem þeir náðu ekki að gera í dag.
Dómarinn - 6
Mér fannst ÞÞÞ fínn í dag en ákvarðanir inn á milli sem voru skrýtnar. Þrátt fyrir að hafa gefið Valsmönnum fimm gul spjöld fannst mér hann sleppa þeim vel á köflum og var stundum ekkert að dæma brot á eitthvað sem mögulega verðskuldaði hreinlega spjald. Hörður Ingi var til dæmis stálheppinn að fá ekki sitt annað gula spjald eftir brot á Hrannari sem ÞÞÞ flautaði ekki einu sinni á en það skipti vissulega ekki sköpum í dag.
|
Byrjunarlið:
1. Frederik Schram (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
('83)
('83)
4. Markus Lund Nakkim
5. Kristófer Dagur Arnarsson
10. Jónatan Ingi Jónsson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
('62)
('62)
17. Lúkas Logi Heimisson
19. Dagur Orri Garðarsson
21. Jakob Franz Pálsson
29. Shkelzen Veseli
('90)
- Meðalaldur 26 ár
('90)
Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
95. Tómas Blöndal-Petersson (m)
9. Patrick Pedersen
('83)
('83)
22. Birkir Heimisson
26. Emil Nönnu Sigurbjörnsson
('62)
('62)
30. Gunnar Karl Heiðdal
('90)
('90)
32. Víkingur Otri Davíðsson
33. Frosti Þorvaldsson
38. Óskar Sveinn Einarsson
- Meðalaldur 20 ár
Liðsstjórn:
Chris Brazell (Þ)
Örn Erlingsson (Liðsstj.)
Baldvin Orri Friðriksson (Leikgr.)
Kirian Elvira Acosta (Styrktarþj.)
Vignir Snær Stefánsson (AÞ)
Emil Alexander Larsen (MÞ)
Halldór Eyþórsson (Liðsstj.)
Einar Óli Þorvarðarson (Sjúkraþj.)
Gul spjöld:
Jakob Franz Pálsson ('13)
Hörður Ingi Gunnarsson ('63)
Jónatan Ingi Jónsson ('75)
Kristófer Dagur Arnarsson ('80)
Tryggvi Hrafn Haraldsson ('86)
Rauð spjöld:
