Í BEINNI
Besta karla
Breiðablik
LL
0
2
2
Stjarnan

Breiðablik
0
2
Stjarnan

0-1
Guðmundur Kristjánsson
'29
0-2
Birnir Snær Ingason
'40
31.08.2026 - 19:15
Eikarvöllurinn
Besta karla
Dómari: Elías Ingi Árnason
Maður leiksins: Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)
Eikarvöllurinn
Besta karla
Dómari: Elías Ingi Árnason
Maður leiksins: Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
('81)
('81)
5. Ívar Örn Árnason
('65)
('65)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
('81)
('81)
9. Óli Valur Ómarsson
13. Anton Logi Lúðvíksson
('65)
('65)
14. Hlynur Freyr Karlsson
18. Davíð Ingvarsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson
('65)
('65)
99. Þorleifur Úlfarsson
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
12. Gylfi Berg Snæhólm (m)
10. Kristinn Steindórsson
('81)
('81)
16. Dagur Örn Fjeldsted
19. Kristinn Jónsson
21. Viktor Örn Margeirsson
('65)
('65)
22. Jónatan Guðni Arnarsson
('65)
('65)
29. Gabríel Snær Hallsson
('65)
('65)
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson
('81)
('81)
45. Þór Andersen Willumsson
- Meðalaldur 24 ár
Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Jón Guðni Fjóluson (AÞ)
Dagur Elís Gíslason (Liðsstj.)
Haraldur Björnsson (MÞ)
Helgi Jónas Guðfinnsson (Styrktarþj.)
Emil Pálsson (AÞ)
Særún Jónsdóttir (Sjúkraþj.)
Gul spjöld:
Hlynur Freyr Karlsson ('90)
Ólafur Ingi Skúlason ('90)
Kristinn Steindórsson ('90)
Rauð spjöld:
Skýrslan: Blikar sigruðu baráttuna um andleysið
|
Hvað réði úrslitum?
Stjörnumenn voru búnir að koma sér í þægilega stöðu í fyrri hálfleiknum og enn og aftur grófu Blikar sér holu sem þeir komust ekki upp úr. Þeir komu skárri út í seinni hálfleikinn en það var bara ekki nóg og Stjörnumenn sigldu þessu heim. Tvö lið sem hefur verið ansi dauft yfir síðustu misseri sem mættust í dag og mér fannst leikurinn bera þess merki á köflum, sérstaklega í þeim seinni en það verður seint talað um þennan leik í sögubókum sem mikla skemmtun.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)
Í bragðdaufum leik þar sem mér fannst enginn bera sérstaklega af komst Gummi Kristjáns vel frá sínu. Skorar fyrsta mark leiksins og skallaði svo allt frá sínu eigin marki. Öflugur í báðum teigum og fær þessa nafnbót fyrir það.
2. Benedikt V. Warén (Stjarnan)
Warén var öflugastur fram á við hjá Stjörnunni í dag, sérstaklega í fyrri hálfleik. Var líflegur og oftast þegar eitthvað gerðist þá var hann einhver partur af því. Leggur upp á Gumma Kristjáns með frábærri hornspyrnu og á hokkí stoðsendingu í öðru markinu, þó að Örvar hafi átt eftir að gera ansi mikið.
Atvikið
Seinna mark Stjörnunnar sem kom rétt fyrir hálfleikinn. Birnir Snær tvöfaldaði þar forystu gestanna sem reyndist nóg til að klára leikinn. Blikar spiluðu skárri seinni hálfleik en fyrri en voru samt aldrei neitt svakalega líklegir að hleypa einhverri spennu í þetta.
|
Hvað þýða úrslitin?
Stjörnumenn halda sér á lífi í baráttunni um sæti í efri hlutanum með því að jafna Skagamenn að stigum þegar ein umferð er eftir fyrir skiptingu. ÍA eru þó með betri markatölu og halda 6. sætinu á því. Blikarnir eru ennþá í 4. sæti en liðin fyrir neðan þá nálgast þó eftir ágústmánuð sem skilaði aðeins einu stigi á töfluna.
Vondur dagur
Færanýting Blika í þessum leik var gríðarlega slök. Þeir sköpuðu sér ágætis færi en þeir annað hvort hittu ekki markið eða settu skotin beint á Árna. Gegn liði sem hefur fengið á sig næstflest mörk í deildinni, með markmann sem hefur lítið verið að skutla sér, gerðu Blikar þeim ofboðslega auðvelt fyrir að halda markinu sínu hreinu í dag. Flæðið í sóknarleiknum er ekkert og leikmenn ekki að ná saman. Ekki bara eru þeir ekki að dansa í takt, þeir eru að dansa á sitthvoru dansgólfinu stóran hluta leiksins.
Dómarinn - 7
Elías Ingi var bara flottur í dag. Mér fannst hann leyfa aðeins of mikið á köflum en það var ekkert alvarlegra en það. Einhver veik vítaköll úr báðum áttum en við fyrstu sýn virtist Elías bara vera með það allt í teskeið að segja nei við því.
|
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
7. Örvar Eggertsson
('58)
('58)
11. Birnir Snær Ingason
14. Bjarki Hauksson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
22. Emil Atlason
('74)
('74)
23. Benedikt V. Warén
('84)
('84)
29. Alex Þór Hauksson
('74)
('74)
32. Örvar Logi Örvarsson
('46)
- Meðalaldur 28 ár
('46)
Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason
8. Jóhann Árni Gunnarsson
('58)
('58)
19. Ari Leifsson
('84)
('84)
21. Ibrahim Turay
('74)
('74)
27. Damil Serena Dankerlui
('46)
('46)
33. Arnar Breki Björnsson
34. Bjarki Friðjón Sæmundsson
94. Árni Vilhjálmsson
99. Andri Rúnar Bjarnason
('74)
- Meðalaldur 26 ár
('74)
Liðsstjórn:
Olgeir Sigurgeirsson (Þ)
Hákon Ernir Haraldsson (Þ)
Brynjar Kristmundsson (Þ)
Egill Atlason (Sjúkraþj.)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Liðsstj.)
Rajko Stanisic (MÞ)
Orian Burzic (AÞ)
Gul spjöld:
Emil Atlason ('49)
Damil Serena Dankerlui ('90)
Gustav Kjeldsen ('90)
Rauð spjöld:
