Í BEINNI
Besta karla
KR
LL
1
1
1
Víkingur R.

KR
1
1
Víkingur R.

0-1
Ármann Ingi Finnbogason
'91
Arnór Ingvi Traustason
'96
1-1
01.09.2026 - 17:30
Meistaravellir
Besta karla
Aðstæður: Huggulegt septemberveður og krökkt í stúkunni
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 4337
Maður leiksins: Oliver Ekroth
Meistaravellir
Besta karla
Aðstæður: Huggulegt septemberveður og krökkt í stúkunni
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 4337
Maður leiksins: Oliver Ekroth
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
('82)
('82)
11. Aron Sigurðarson (f)
17. Luke Rae
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Arnór Ingvi Traustason
26. Hrafn Tómasson
('71)
('71)
45. Galdur Guðmundsson
77. Orri Hrafn Kjartansson
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
31. Arnar Freyr Ólafsson (m)
4. Michael Akoto
('71)
('71)
8. Stefán Árni Geirsson
('82)
('82)
24. Fannar Heimisson
28. Hjalti Sigurðsson
29. Aron Þórður Albertsson
30. Sigurður Breki Kárason
95. Sölvi Snær Ásgeirsson
- Meðalaldur 24 ár
Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Hilmar Árni Halldórsson (AÞ)
Hrannar Bogi Jónsson (AÞ)
Magnus Börheim (Sjúkraþj.)
Björn Valdimarsson (Forráðam.)
Lúðvík Júlíus Jónsson (Liðsstj.)
Guðjón Örn Ingólfsson (Styrktarþj.)
Jamie Paul Brassington (MÞ)
Gul spjöld:
Ástbjörn Þórðarson ('40)
Rauð spjöld:
Skýrslan: 4300 manns sem urðu ekki fyrir vonbrigðum
|
Hvað réði úrslitum?
Þrátt fyrir að staðan hafi verið markalaus lengst af var mikil skemmtun á Meistaravöllum. Þá sér í lagi fyrri hluta fyrri hálfleiks. Eftir því sem leið á leikinn varð minna um færi og varð hann að einhverju leyti lokaðri. Það þurfti eitthvað sérstakt til þess að brjóta ísinn og Ármann Ingi gerði nákvæmlega það í uppbótartíma. Fótboltaguðirnir vildu ekki sjá Víkinga hlaupa (lengra) með mótið í dag og tókst KR-ingum að jafna metin með svo gott sem síðustu spyrnu leiksins. Þegar á botninn er hvolft var þetta sanngjarnt jafntefli tveggja bestu liða landsins.
Bestu leikmenn
1. Oliver Ekroth
Steig heldur betur upp eftir brotthvarf Gunnars Vatnhamars og steig hann varla feilspor.
2. Finnur Tómas Pálmason
Í hjarta varnar KR var annar maður sem stóð sig frábærlega og hefur stigið mikið upp á tímabilinu. Á allt hrós skilið en vissulega svekkjandi að þurfa að velja tvo hafsenta í þennan dálk eftir svona stórleik.
Atvikið
Atvikið er klárlega þegar Haukur Harðarson tók utan um míkrafóninnn um miðbik síðari hálfleiks og kynnti áhorfendatölur. Undirritaður bjóst við tölu rétt norðan þrjú þusund en 4337 varð raunin, sem er það mesta í tólf ár.
|
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar eru með átta stiga forystu á toppi deildarinnar fyrir skiptingu. Fari svo að liðið vinni Fram í næstu umferð má fara að óska þeim til hamingju með titilinn. KR og Fram eru jöfn að stigum í 2. og 3. sæti.
Vondur dagur
Eiður Gauti Sæbjörnsson var minna í boltanum og færum en maður hefði búist við. KR-ingar hafa eflaust viljað fá meira út úr honum. Þá var Valdimar Þór mikið í boltanum og átti heilt yfir prýðisleik. Hann fékk þrjú góð færi á þremur mínútum undir lok fyrri hálfleiks og hefði eflaust viljað nýta eitthvað af þeim.
Dómarinn - 5
Ívar Orri og félagar hafa átt betri daga. Víkingum fannst halla á sig í dómgæslunni og ég skil það vel. Hrannar Snær átti að fá vítaspyrnu og svo er spurning með rangstöðumarkið. Það sem undirrituðum þótti hvað verst vera er hversu mikið það var stoppað og hægt á leiknum. Auðvitað óumflýjanlegt í einhverjum atvikum en full mikið fyrir minn smekk.
|
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
('89)
('89)
4. Oliver Ekroth (f)
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
('68)
('68)
21. Aron Elís Þrándarson
('68)
('68)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
70. Hrannar Snær Magnússon
('83)
('83)
77. Stígur Diljan Þórðarson
('83)
- Meðalaldur 27 ár
('83)
Varamenn:
47. Ögmundur Kristinsson (m)
5. Sölvi Stefánsson
8. Viktor Örlygur Andrason
('68)
('68)
('68)
('68)
15. Róbert Orri Þorkelsson
('89)
('89)
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
30. Sveinn Margeir Hauksson
('83)
('83)
52. Viðar Elí Bjarnason
69. Ármann Ingi Finnbogason
('83)
- Meðalaldur 26 ár
('83)
Liðsstjórn:
Sölvi Geir Ottesen (Þ)
Hajrudin Cardaklija (MÞ)
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.)
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ)
Kári Sveinsson (Styrktarþj.)
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.)
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.)
Gul spjöld:
Karl Friðleifur Gunnarsson ('11)
Aron Elís Þrándarson ('68)
Rauð spjöld: