Fotbolti.net
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Fótbolti.net bikarinn
Laugardalsvöllur
Toppaðstæður í Laugardalnum
Selfoss
Selfoss
3 - 1
Haukar
Haukar
0 - 120' Ívan Breki Sigurðsson (sjm)Eysteinn Ernir Sverrisson 26'1 - 1Frosti Brynjólfsson 72'2 - 1Viðar Örn Kjartansson 93'3 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 1158
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Sigursælasta liðið í þeirri yngstu og sprækustu heppið?

Hvað réði úrslitum?

Eftir að Selfoss jafnaði leikinn fannst mér eins og þeim leið betur í leiknum, þrátt fyrir að hafa ekki haldið mikið í boltann. Haukarnir hefðu átt að fá víti að mínu mati nokkrum sekúndum áður en Selfoss skorar 2-1 markið og það hefði breytt miklu.

Bestu leikmenn

1. Frosti Brynjólfsson (Selfoss)

Skorar eitt og leggur upp eitt. Hann gerði gífurlega vel í 2-1 markinu og var mjög vinnusamur á og án boltans. Besti maður vallarins að mínu mati.

2. Viðar Örn Kjartansson

Ætla að gefa VÖK þetta eftir að hafa skorað þetta mark í restina og klárað þetta. Hann var gífurlega vinnusamur í leiknum og ótrúlega mikilvægur í uppspili Selfyssinga. Það fór mikið í gegnum hann, mikið að skapa færi og usla í kringum sig.

Atvikið

Stærsta atvik leiksins að mínu mati var þegar Sigurður Hrannar fer niður í teig Selfyssinga og vill fá víti eins og allir Haukarar. Arnar dæmdi ekkert víti og í staðinn fara Selfyssingarnir upp hinum meginn og skora 2-1 markið. Að mínu mati klárt víti og atvik sem klárlega hefði breytt gangi leiksins. Selfyssingar gífurlega heppnir með þetta atvik.

Hvað þýða úrslitin?

Selfyssingar eru Gatorade meistarar og því orðið sigursælasta félag í sögu Fótbolta.net bikarnum, þeirri yngstu og sprækustu.

Vondur dagur

Erfitt að velja einhvern einn. Vel kannski Sigurð Hrannar. Fannst Haukarnir komast oft í álitlegar stöður en það vantaði lokasnertinguna frá þeirra fremstu mönnum, einhvern til að reka endahnútinn á þetta.

Dómarinn - 6

Mér fannst dómgæslan ágæt þrátt fyrir ein og ein mistök eins og gengur og gerist en stærsta atvikið var vítið sem Haukarnir áttu að fá nokkrum sekúndum áður en Selfyssingar komast 2-1 yfir. Það lækkar tríóið í einkunn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.