Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna - Neðri hluti
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
2 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
Taylor Marie Hamlett 33'1 - 01 - 154' Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir1 - 284' Jasmín Erla Ingadóttir85' Jón Páll PálmasonAlda Ólafsdóttir 88'2 - 294' Mikael Uni Karlsson Brune
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Víkingar misstu hausinn þegar þeir máttu það síst

Hvað réði úrslitum?

Víkingar byrjuðu miklu betur en eftir að fyrsta markið kom þá jafnaðist leikurinn út. Leikurinn er jafn í seinni hálfleik, svo byrjaði alvöru síðustu tíu mínútur þar sem Víkingar komast yfir og það verður algjört fíaskó eftir það.

Bestu leikmenn

1. Jasmín Erla Ingadóttir

Með mark og stoðsendingu í dag. Var mjög góð í dag og komst í nokkur góð færi en gat ekki nýtt sér þau.

2. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Skoraði jöfnunarmarkið, en hún átti að vera með eina stoðsendingu eftir að hún setti Jasmín í gegn og hún Jasmín klúðraði dauðafæri.

Atvikið

Eftir seinna mark Víkings þá byrjar algjört fíaskó. Tvö rauð, Fram jafnar og eftir rólegan leik þá kemur algjör hiti. Fjórði dómarinn fékk mikið á baukinn eftir þetta.

Hvað þýða úrslitin?

Fram er í 1. sætinu í neðri hlutanum. Víkingar eru í 2. sæti, en á morgun spilar Valur á móti Þór/KA og það getur allt breyst eftir þann leik.

Vondur dagur

Sá sem sér um föstu leikatriðin hjá Víking fékk líklega sting í hjartað þegar Fram skoraði sitt seinna mark, þetta var agaleg vörn. Svo tók Bergdís nokkur föst leikatriði fyrir Víking og það fór aldrei neitt, þetta var smá þrot. Dagný Rún á kantinum átti ekki sinn besta dag, margar af fyrirgjöfum hennar fóru beint í hendur Orkus í marki Fram.

Dómarinn - 5

Eftir annað mark Víkings stóð aðstoðarþjálfarinn Jón Páll rétt fyrir utan völlinn og öskraði á sína leikmenn. Eftir frekari athugun og ný myndbönd sem bárust mér þá fór hann ekki inn á völlinn eins og ég hélt fyrst, heldur var hann fyrir aftan línuna. Fjórði dómarinn líkaði ekki við það sem hann var að gera, bað hann um að fara aftur inn í boxið sitt en Jón Páll varð ekki við því og veifaði eitthvað í áttina að fjórða. Fjórði líka ekki við það og kallað í dómarann sem gaf Jóni gult spjald. Hann hélt áfram að rífast við dómarann og fékk annað gula spjaldið sitt. Það má skilja pirringinn vegna spjaldsins, enda voru leikmenn Víkings enn að koma sér yfir á sinn vallarhelming þegar fjórði dómarinn skipti sér af honum, enda er hann að mínu mati mjög fljótur að skipta sér af. En hvort að hann sagði eitthvað við fjórða, það verður að koma í ljós seinna.

Rauða spjaldið á styrktarþjálfara Víkings hann Mikael, er pjúra rautt spjald, hann sparkar í stól sem er ekki langt frá því að fara inn á völlinn, menn verða að halda haus. Þetta var fáránleg hegðun.

Mikael vildi fá víti á 94. mínútu sem ég held að það sé ekki víti, en það er tæpt og erfitt að segja. Arna Ísold er fyrir í útsendingunni og þetta virkaði mjög tæpt.

Svo voru nokkrir skrýtnir litlir dómar hér og það sem ég var ósammála.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.