Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna - Efri hluti
Kaplakrikavöllur
FH
FH
1 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir 90'1 - 0
Dómari: Hreinn Magnússon
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Fyrirliðinn bjargaði FH á ögurstundu

Hvað réði úrslitum?

FH var sterkari aðilinn stóran hluta leiksins og skapaði sér nóg af góðum stöðum en Stjarnan var gríðarlega þétt til baka og Bridgette Skiba átti mjög góðan leik í markinu. Þolinmæði FH hins vegar og sú staðreynd að þær héldu áfram að leita að markinu alveg fram á síðustu stundu réði að lokum úrslitum.

Bestu leikmenn

1. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir

Ekki hægt að velja neinn annan en fyrirliðan og hetju FH fyrir sigurmarkið á lokamínútu venjulegs leiktíma! Hún er líka hryggstykkið inn á miðjunni hjá þessu unga FH liði og hún stýrir þeim vel

2. Eva Marie Wirtz

Hjá Stjörnukonum þá átti Eva Marie Wirtz stjörnuleik og hefði verið maður leiksins ef þær haldið hreinu! Skiba, Jakobína og Þóra María voru líka flottar í öftustu línu og þarna er á ferðinni eitt besta varnarlið deildarinnar.

Atvikið

Það getur ekki verið neitt annað en sigurmarkið! Thelma Lóa fékk boltann úti á kanti á lokamínútu venjulegs leiktíma, keyrði upp völlinn og lagði frábæran bolta út í teiginn. Þar kastaði Andrea Rán sér á boltann og stýrði honum í fjærhornið.

Hvað þýða úrslitin?

FH svarar 4-1 sigri Breiðabliks á Grindavík/Njarðvík frá því í gær og heldur áfram að fylgja Blikum fast á eftir í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Stjarnan hins vegar situr áfram í fjórða sæti og fær ekkert fyrir mjög öfluga frammistöðu í Kaplakrika. Liðið var örfáum andartökum frá stigi en þarf þess í stað að sætta sig við þriðja leikinn í röð þar sem það fær á sig mark undir lokin.

Vondur dagur

Svo sem enginn leikmaður sem átti eitthvað áberandi slakan dag, mögulega kannski bara sóknarlína beggja liða, varnarleikurinn var upp á tíu sem þýðir þá líka að sóknarleikurinn for forgörðum!

Tapið sest væntanlega mest á Stjörnuleikmennina hins vegar sem voru að tapa 3 leiknum í röð með marki á lokamínútunni!

Dómarinn - 8

Hreinn Magnússon og hans teymi áttu heilt yfir góðan og frekar tíðindalítinn dag. Leikurinn var mikill baráttuleikur en dómarateymið hélt góðri stjórn og engin stór umdeild atvik settu mark sitt á leikinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.