Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna - Neðri hluti
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
0 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Dómari: Bríet Bragadóttir
Fyrir leik
Bæði lið hafa unnið síðasta leik
Í síðasta leik fóru Framkonur til Eyja og unnu 2–3 eftir að hafa lent 2–0 undir. Þær náðu að minnka muninn fyrir hálfleik og bættu svo við tveimur mörkum í síðari hálfleik til að tryggja sigurinn. Þar áður fengu þær Stjörnuna í heimsókn og unnu 3–2, þar sem Sara Svanhildur skoraði sigurmarkið á 90. mínútu.

Víkingur mætir einnig til leiks í góðu formi og er á þriggja leikja sigurgöngu. Hún hófst með 0–1 sigri gegn FH í Krikanum, þar sem Telma Ívars varði vítaspyrnu á 88. mínútu. Því næst fengu Víkingar Grindavík/Njarðvík í heimsókn og unnu 3–0, þar sem Bergdís Sveins skoraði tvisvar. Í síðasta leik fór Víkingur svo í heimsókn til Stjörnunnar og vann 1–2, Thea Rhode skoraði sigurmarkið á 89. mínútu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Innbyrðis
Bæði lið hafa unnið útileikinn gegn hinu liðinu á tímabilinu. Fram hafði betur gegn Víkingi í Hamingjunni, 1–2. Alda Ólafsdóttir skoraði bæði mörk Fram, en Harpa Helgadóttir skoraði í sitt eigið net. Á Lambhagavelli hafði Víkingur síðan betur, 0–1. Þar kom eina mark leiksins einnig eftir sjálfsmark Hörpu Helgadóttur.

Það sama gerðist á síðasta tímabili, þar sem liðin skiptu með sér útisigrunum. Víkingur vann 2–5 á Lambhagavelli, en Fram hafði betur 1–2 í Hamingjunni.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Allt opið í neðri hlutanum
Fram situr í 1. sæti neðri hlutans með 22 stig og -15 í markatölu. Víkingur er í 3. sæti, sem er fallsæti, með 20 stig og -11 í markatölu.

Valur er í 2. sæti með 20 stig og er með örlítið betri markatölu en Víkingur. Þór/KA situr á botninum með 19 stig, en liðið er með töluvert betri markatölu en hin liðin í fallbaráttunni, eða -4.

Það er óhætt að segja að ein úrslit geti breytt öllu og því má búast við spennandi lokaumferð í fallbaráttunni. Valur fær Þór/KA í heimsókn á Laugardalsvöllinn laugardaginn 19. september. Kannski eftir að lokaumferðin klárast þá getum við séð Fram í botnsætinu og Þór/KA í efsta sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið
Bríet Bragadóttir verður með flautuna. Kári Mímisson og Tijana Krstic verða með flöggin. Milan Djurovic verður með skiltið góða.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Lambhagavellinum í Úlfarsárdal. Fram fær Víking í heimsókn í 1. umferð neðri hluta Bestu Deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.