Fótbolti.net bikarinn
Selfoss
LL 3
1
Haukar
Besta kvenna - Neðri hluti
Fram
LL 2
2
Víkingur R.
Besta kvenna - Efri hluti
ÍBV
LL 4
3
Þróttur R.
Besta kvenna - Efri hluti
FH
LL 1
0
Stjarnan
Fram
2
2
Víkingur R.
Taylor Marie Hamlett '33 1-0
1-1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir '54
1-2 Jasmín Erla Ingadóttir '84
Jón Páll Pálmason '85
Alda Ólafsdóttir '88 2-2
Mikael Uni Karlsson Brune '94
18.09.2026  -  18:00
Lambhagavöllurinn
Besta kvenna - Neðri hluti
Dómari: Bríet Bragadóttir
Maður leiksins: Jasmín Erla Ingadóttir
Byrjunarlið:
24. Ashley Brown Orkus (m)
4. Emma Kate Young
6. Katrín Erla Clausen ('46)
7. Alda Ólafsdóttir
11. Brookelynn Paige Entz
14. Hildur María Jónasdóttir (f)
17. Katrín S. Vilhjálmsdóttir ('68)
19. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
23. Isabelle Rose Gilmore
32. Taylor Marie Hamlett
36. Harpa Helgadóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
33. Þóra Rún Óladóttir (m)
2. Hanna Faith Victoriudóttir
8. Karítas María Arnardóttir
9. Hlín Heiðarsdóttir ('68)
10. Una Rós Unnarsdóttir ('46)
18. Júlía Margrét Ingadóttir
20. Freyja Dís Hreinsdóttir
22. Halla Helgadóttir
25. Kristín Magdalena Barboza
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Anton Ingi Rúnarsson (Þ)
Stefán Óli Hallgrímsson (MÞ)
Sævar Halldórsson (AÞ)
Svanhvít Valtýsdóttir (Liðsstj.)
Telma Hjaltalín Þrastardóttir (Sjúkraþj.)
Magnús Þorsteinsson (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Emma Kate Young ('30)
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('48)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Skýrslan: Víkingar misstu hausinn þegar þeir máttu það síst
Hvað réði úrslitum?
Víkingar byrjuðu miklu betur en eftir að fyrsta markið kom þá jafnaðist leikurinn út. Leikurinn er jafn í seinni hálfleik, svo byrjaði alvöru síðustu tíu mínútur þar sem Víkingar komast yfir og það verður algjört fíaskó eftir það.
Bestu leikmenn
1. Jasmín Erla Ingadóttir
Með mark og stoðsendingu í dag. Var mjög góð í dag og komst í nokkur góð færi en gat ekki nýtt sér þau.
2. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Skoraði jöfnunarmarkið, en hún átti að vera með eina stoðsendingu eftir að hún setti Jasmín í gegn og hún Jasmín klúðraði dauðafæri.
Atvikið
Eftir seinna mark Víkings þá byrjar algjört fíaskó. Tvö rauð, Fram jafnar og eftir rólegan leik þá kemur algjör hiti. Fjórði dómarinn fékk mikið á baukinn eftir þetta.
Hvað þýða úrslitin?
Fram er í 1. sætinu í neðri hlutanum. Víkingar eru í 2. sæti, en á morgun spilar Valur á móti Þór/KA og það getur allt breyst eftir þann leik.
Vondur dagur
Sá sem sér um föstu leikatriðin hjá Víking fékk líklega sting í hjartað þegar Fram skoraði sitt seinna mark, þetta var agaleg vörn. Svo tók Bergdís nokkur föst leikatriði fyrir Víking og það fór aldrei neitt, þetta var smá þrot. Dagný Rún á kantinum átti ekki sinn besta dag, margar af fyrirgjöfum hennar fóru beint í hendur Orkus í marki Fram.
Dómarinn - 5
Eftir annað mark Víkings steig aðstoðarþjálfarinn Jón Páll inn á völlinn og öskraði á sína leikmenn. Fjórði dómarinn bað hann um að fara aftur inn í boxið sitt en Jón Páll varð ekki við því og veifaði í áttina að fjórða, hann fékk svo gult spjald. Hann hélt áfram að rífast við dómarann og fékk annað gula spjaldið sitt. Það má skilja pirringinn vegna fyrra spjaldsins, enda voru leikmenn Víkings enn að koma sér yfir á sinn vallarhelming þegar fjórði dómarinn skipti sér af honum, en hvort að hann sagði eitthvað við fjórða, það verður að koma í ljós seinna. Rauða spjaldið á styrktarþjálfara Víkings hann Mikael, er pjúra rautt spjald, hann sparkar í stól sem er ekki langt frá því að fara inn á völlinn, menn verða að halda haus. Þetta var fáránleg hegðun. Mikael vildi fá víti á 94. mínútu sem ég held að það sé ekki víti, en það er tæpt og erfitt að segja. Arna Ísold er fyrir í útsendingunni og þetta virkaði mjög tæpt. Svo voru nokkrir skrýtnir litlir dómar hér og það sem ég var ósammála.
Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
3. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (f)
7. Dagný Rún Pétursdóttir ('65)
15. Saana Emilia Tuomala
17. Jasmín Erla Ingadóttir ('85)
18. Kristín Erla Ó Johnson
20. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
26. Bergdís Sveinsdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
34. Anika Jóna Jónsdóttir
35. Arna Ísold Stefánsdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
41. Elizabeth Grace McClellan (m)
4. Erna Guðrún Magnúsdóttir
9. Thea Rhode ('85)
10. Selma Dögg Björgvinsdóttir
11. Helena Ósk Hálfdánardóttir
13. Camilly Kristal Silva Da Rocha
16. Jóhanna Elín Halldórsdóttir ('65)
19. Þórhildur Þórhallsdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Einar Guðnason (Þ)
Lisbeth Borg (Liðsstj.)
Jón Páll Pálmason (AÞ)
Birgitta Rún Yngvadóttir (Liðsstj.)
Mikael Uni Karlsson Brune (Styrktarþj.)
Sólveig Þórarinsdóttir (Sjúkraþj.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (MÞ)

Gul spjöld:
Anika Jóna Jónsdóttir ('70)
Bergdís Sveinsdóttir ('94)
Einar Guðnason ('96)

Rauð spjöld:
Jón Páll Pálmason ('85)
Mikael Uni Karlsson Brune ('94)