Evrópubikar kvenna
Czarni
LL 1
0
Breiðablik
Evrópubikar kvenna
Frankfurt
LL 4
1
FH
Czarni
1
0
Breiðablik
Samtals
7
:
2
Patrycja Sarapata '58 1-0
Klaudia Milek '81 , misnotað víti 1-0
Klaudia Milek '82 , misnotað víti 1-0
30.09.2026  -  17:00
Zaglebiowski Park Sportowy
Evrópubikar kvenna
Dómari: Ana Maria Terteleac (ROU)
Maður leiksins: Taylor Kane
Byrjunarlið:
1. Anna Palinska (m)
2. Oliwia Lapinska
7. Klaudia Milek
8. Natalia Chudzik ('84)
9. Patrycja Sarapata
14. Zofia Burzan ('77)
17. Nikol Kaletka ('84)
19. Karlina Miksone
27. Daria Kurzawa
70. Zofia Buszewska ('70)
84. Oliwia Katowicz ('70)

Varamenn:
22. Faustyna Korzekwa (m)
75. Zuzanna Lozio (m)
10. Weronika Wójcik
11. Luiza Kozielska ('70)
13. Wiktoria Kaczmarek
20. Zofia Switala
21. Nikola Galuszka
23. Oliwia Zgoda ('77)
25. Lena Saja
28. Emilia Sobierajska ('70)
66. Iga Witkowska
86. Anna Krakowiak
99. Amelia Chmura ('84) ('84)

Liðsstjórn:
Sebastian Stemplewski (Þ)

Gul spjöld:
Zofia Buszewska ('17)
Luiza Kozielska ('83)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Snæbjört Pálsdóttir
Skýrslan: Úti er Blikaævintýri
Hvað réði úrslitum?
Yfirburðir pólsku meistaranna voru bara of miklir fyrir Blikaliðið, þær voru ofan á í flestum aðgerðum og Blikarnir eiginlega bara stálheppnar að Klaudia Milek virðist hafa klárað markakvótann í fyrri leiknum. Hún átti urmul dauðafæra og fékk tvö tækifæri til að skora úr víti en allt kom fyrir ekki. Erfið úrslit úr fyrri leiknum hjálpaði Blikum ekki heldur.
Bestu leikmenn
1. Taylor Kane
Hélt Blikakonum inn í þessum seinni leik, var örugg í sínum aðgerðum í dag, varði á mikilvægum augnablikum og varði svo ekki bara eina heldur tvær vítaspyrnur frá markamaskínunni Klaudia Milek.
2. Elín Helena Karlsdóttir
Stóð sína plikt heldur betur vel í hjarta varnarinnar í dag, átti stóran þátt í því að Milek næði ekki að skora í dag, var áræðin á boltanum og varðist stöðugum sóknum pólsku meistaranna vel
Atvikið
Ég verð að setja þetta á vítaspyrnufíaskóið! í fyrsta lagi ekki viss um að þetta hafi endilega verið víti. Allvega Klaudia Milek fer á punktinn, Taylor Kane ver, Milek er fyrst á boltann en lætur samherja sinn taka hann sem skorar. Dómarateymið flautar markið af, við fyrstu sýn virðist það vera vegna rangstöðu en nei vítið skyldi endurtekið þar sem Taylor Kane fer af línunni. Klaudia Milek fær annan séns til að setja mark sitt á leikinn en aftur ver Taylor Kane glæsilega!
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Czarni vinnur þennan leik 1-0 og einvígið því samanlagt 7-2! Þær verða því í pottinum í næsta drætti en Blikarnir sitja eftir með sárt ennið og eru úr leik.
Vondur dagur
Eins brjálæðislega góð og Klaudia Milek var í fyrri leik liðanna þá er alveg óskiljanlegt að hún hafi ekki skorað í dag! Fékk vítaspyrnu sem hún lét Taylor verja frá sér, fékk svo annað tækifæri þegar dómarateymið dæmdi að vítið skyldi endurtekið þar sem Taylor fór af línunni en aftur lét hún Taylor verja frá sér! Hún fer líklega brjáluð á koddann í nótt
Dómarinn - 4
Ana Maria Terteleac og hennar dómarateymi fannst mér bara ekki nægilega góðar. fannst hún ekki setja nægilega góða línu og fara eftir henni. Happa og glappa hvort hún flautaði á sambærileg brot og mér fannst halla á Blikana oft á tíðum.
Byrjunarlið:
12. Taylor Kane (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Katelyn Duong
11. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('73)
17. Karitas Tómasdóttir ('46)
18. Kristín Dís Árnadóttir
29. Sunna Rún Sigurðardóttir
52. Kristín Vala Stefánsdóttir ('58)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
5. Olga Ingibjörg Einarsdóttir ('46)
10. Bryndís Arna Níelsdóttir ('58)
15. Edith Kristín Kristjánsdóttir
16. Þórdís Elva Ágústsdóttir
20. Dórothea Ósk Haraldsdóttir ('73)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)

Gul spjöld:
Sunna Rún Sigurðardóttir ('17)
Karitas Tómasdóttir ('35)
Elín Helena Karlsdóttir ('80)

Rauð spjöld: