Besta kvenna - Neðri hluti
Víkingur R.
LL 0
2
Þór/KA
Besta kvenna - Neðri hluti
Fram
LL 1
2
Valur
Besta kvenna - Efri hluti
Stjarnan
LL 0
0
Gri/Nja
Fram
1
2
Valur
0-1 Emma Hawkins '61
0-2 Arnfríður Auður Arnarsdóttir '73
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir '87 1-2
02.10.2026  -  18:00
Lambhagavöllurinn
Besta kvenna - Neðri hluti
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Maður leiksins: Margrét Brynja Kristinsdóttir (Valur)
Byrjunarlið:
24. Ashley Brown Orkus (m)
4. Emma Kate Young
6. Katrín Erla Clausen
7. Alda Ólafsdóttir ('69)
11. Brookelynn Paige Entz ('81)
14. Hildur María Jónasdóttir (f) ('81)
17. Katrín S. Vilhjálmsdóttir ('63)
19. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
23. Isabelle Rose Gilmore
32. Taylor Marie Hamlett
36. Harpa Helgadóttir ('63)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
33. Þóra Rún Óladóttir (m)
3. Rakel Rós Unnarsdóttir
8. Karítas María Arnardóttir
9. Hlín Heiðarsdóttir ('69)
10. Una Rós Unnarsdóttir ('63)
18. Júlía Margrét Ingadóttir ('81)
20. Freyja Dís Hreinsdóttir ('63)
22. Halla Helgadóttir ('81)
25. Kristín Magdalena Barboza
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Anton Ingi Rúnarsson (Þ)
Stefán Óli Hallgrímsson (MÞ)
Sævar Halldórsson (AÞ)
Petra Rós Ólafsdóttir (Liðsstj.)
Krista Dís Kristinsdóttir (Liðsstj.)
Svanhvít Valtýsdóttir (Liðsstj.)
Magnús Þorsteinsson (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Katrín Erla Clausen ('28)
Taylor Marie Hamlett ('31)
Isabelle Rose Gilmore ('52)
Emma Kate Young ('77)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Skýrslan: Þrátt fyrir sigur, þá var það ekki nóg
Hvað réði úrslitum?
Það sást strax í leiknum hvort liðið þurfti að vinna og hvort liðið var þægilegra. Valur var betra liðið allan leikinn og stjórnaði honum að mestu. Bestu kaflar Fram komu fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálfleik og svo aftur síðustu tíu mínúturnar. Það eina sem vantaði hjá Val var síðasta ákvarðanatakan. Þegar tækifæri gafst til að senda leikmann í gegn hikuðu leikmenn Vals of oft og enduðu í mörgum tilfellum á því að missa boltann frá sér og þannig skapaðist ekki mikið af dauðafærum. Þú getur ekki spilað vel í einum leik heldur þarftu að spila vel í öllum leikjum og þetta var ekki nóg hjá Val.
Bestu leikmenn
1. Margrét Brynja Kristinsdóttir (Valur)
Hún var mjög góð í dagm, var allt í öllu. Hún sýndi mikla orku, lagði sig alltaf fram og var hættuleg á kantinum. Varnarmenn Fram áttu erfitt með að ráða við hana. Við sendum henni batakveðjur, en hún þurfti að fara með sjúkrabíl af vellinum eftir að hafa meiðst.
2. Lillý Rut Hlynsdóttir (Valur)
Þrátt fyrir að hafa fengið á sig klaufalegt mark, sem var ekki henni að kenna, hélt hún áfram að leggja sig alla fram. Hún skallaði flesta bolta frá og stóð vaktina vel. Fram fékk engin almennileg færi fyrir utan eitt, sem þær skoruðu úr.
Atvikið
Þegar fyrsta mark Hawkins kom hélt Valur að þær væru að halda sér uppi og mikil fagnaðarlæti brutust út. Markið gaf leiknum meira líf. Valur hætti aldrei að sækja og hélt áfram að leita að öðru marki.
Hvað þýða úrslitin?
Valur fellur niður í Lengjudeildina á meðan Fram heldur sæti sínu í Bestu deildinni.
Vondur dagur
Ashley Orkus í marki Fram var tæp í dag. Seinna markið leit ekki vel út og hún var oft á tíðum að missa boltann frá sér þegar hún átti að grípa hann. Harpa mun líklega ekki vera sátt við sinn þátt í fyrsta markinu, en hún gaf Hawkins markið nánast á silfurfati með mjög slakri sendingu til baka.
Dómarinn - 5
Það er erfitt að segja. Valur vildi fá að minnsta kosti þrjú víti, en öll atvikin voru mjög tæp og erfitt að segja um þau. Sumir dómarar hefðu líklega dæmt víti, en ég held að Valur sé ekki að kvarta núna. Fyrir utan það þá fannst mér dómarinn sleppa nokkrum gulum spjöldum hér og þar.
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
4. Helga Rut Einarsdóttir
5. Bryndís Eiríksdóttir
6. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
8. Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('74)
14. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir ('79)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir (f)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Emma Hawkins ('63)
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Esther Júlía Gustavsdóttir (m)
2. Sigrún Ísfold Valsdóttir
7. Ísabella Sara Tryggvadóttir ('74)
9. Sonja Björg Sigurðardóttir
13. Nadía Atladóttir ('79)
25. Glódís María Gunnarsdóttir ('63)
26. Ása Kristín Tryggvadóttir
36. Aníta Björk Matthíasdóttir
37. Lísa Ingólfsdóttir
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
Hallgrímur Heimisson (AÞ)
Hilmar Andrew McShane (Styrktarþj.)
Eiríkur Raphael Elvy (AÞ)
Emil Alexander Larsen (MÞ)
María Hjaltalín (Liðsstj.)
Jónas Breki Kristinsson (Leikgr.)
Helgi Freyr Þorsteinsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: