SKÝRSLAN: Andleysið í Garðabænum algjört
Hvað réði úrslitum?
Andleysið var algjört hjá Stjörnunni. Þrátt fyrir að halda betur í boltann voru Garðbæingar aldrei nálægt því að skapa sér færi. KA-menn unnu mjög svo verðskuldaðan sigur sem var í raun aldrei í hættu.
Bestu leikmenn
1. Hallgrímur Mar Steingrímsson
Hallgrímur heilt yfir frábær, fiskaði vítaspyrnu og skoraði sjálfur úr henni af miklu öryggi.
2. Adam Ægir Pálsson
Skoraði gott mark og vann virkilega vel fyrir liðið í dag. Ég lofaði honum fyrsta sætinu eftir leik en vonandi fyrirgefur Adam mér þetta. Valdimar Logi Sævarsson og Jakob Snær Árnason eiga sömuleiðis lof skilið fyrir frammistöður sínar í dag.
Atvikið
Andleysi Garðbæinga fær þessa nafnbót. Mátti best sjá það á leikmönnum inni á vellinum en jafnframt upp í stúku. Alls mættu 264 stuðningsmenn á völlinn og eflaust helmingur þeirra stuðningsmenn KA. Maður skilur stuðningsmenn Stjörnunnar þó fullkomlega að láta ekki bjóða sér þetta.
Hvað þýða úrslitin?
KA-menn eru tveimur stigum frá fallsæti og eru í harðri baráttu við erkifjendurna í Þór. Stjarnan er í 8. sæti og hefur að engu að keppa.
Vondur dagur
Fremstu fjórir hjá Stjörnunni sáust varla - Örvar, Benedikt, Emil og Birnir. Benedikt Warén hlýtur þó þennan titil þar sem hann lék reka sig af velli, þó svo að það hafi verið harður dómur.
Dómarinn - 5
Helgi flautaði réttilega vítaspyrnu í fyrri hálfleik en rauða spjaldið sem hann gaf Benedikt Warén var rangur dómur. Hefði átt að gefa honum gult og halda áfram með lífið.




