SKÝRSLAN: Brand-Ara mark felldi ÍBV
Hvað réði úrslitum?
Eyjamenn voru bara ekki mættir til leiks í fyrri hálfleik. Lið Þórs var ofan á í flestu á vellinum á fyrstu 45 mínútum leiksins og leiddu verðskuldað þótt það hafi tilkomið með skrautlegum hætti. Eyjamenn reyndu hvað þeir gátu að bæta úr slökum fyrri hálfleik með kraftmeiri frammistöðu í þeim síðari en tókst ekki að finna löglegu leiðina í markið og því fór sem fór.
Bestu leikmenn
1. Ásbjörn Líndal Arnarsson
Og Gyrðir Hrafn sömuleiðis. Frábærir varnarlega í dag og átu allt sem nálægt teig Þórs kom. Virkilega sterk frammistaða varnarlega í dag.
2. Ágúst Eðvald Hlynsson
Það eru fáir í deildinni sem hlaupa jafn mikið og hann í hverjum leik. Dugnaður út í gegn og vinnur gríðarvel fyrir liðið, Átti sendinguna sem skapaði markið.
Atvikið
Það getur ekkert annað verið en markið hjá Christian Greko, Fyrirjgöf fyrir markið frá vinstri sem virðist stefna beint í fang Ara í marki ÍBV sem missir boltann beint í Greko sem fær boltann meira í sig en eitthvað annað og þaðan fer boltinn í netið. Rándýrt mark fyrir ÍBV og atvik sen mun sitja í mörgum langt inn í veturinn.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða að ÍBV með 19 stig á botninum á ekki lengur möguleika á að bjarga sér frá falli en sjö stig eru í KA í næsta örugga sæti og tvær umferðir eru eftir. Þór er með 24 stig og mun eiga í harðri baráttu við granna sína í KA um sæti í deildinni að ár.
Vondur dagur
Ari i Haraldstovu Petersen mun ekki sofa vel í nótt. Þessi mistök á þessum tímapunkti sem kosta þetta mikið er súr biti að kyngja. En svona er fótboltinn og lífið sjálft stundum og þá er bara að setja hausinn upp, kassann út og halda áfram.
Dómarinn - 6
Að höfðu samráði við fróðari menn en sjálfan mig hallast ég að því að Vilhjálmur og hans teymi hafi komist að réttri niðurstöðu í umdeildu atviki í fyrri hálfleik þegar Aron Birkir og Aron Vokes lenda í hörðu samstuði á vellinum. Hann komst hins vegar að rangri niðurstöðu þegar Sigurður Arnar Magnússon sveiflaði olnboganum í Christian Greko í síðari hálfleik að mínu mati og hefði með réttu átt að lyfta rauðu spjaldi á Eyjamanninn þá. Annars heilt yfir bara þokkalegt í nokkrum hitaleik.



