SKÝRSLAN: KR stal 2. sætinu á Lambhagavellinum
Hvað réði úrslitum?
KR-ingar skoruðu tvö mörk gegn aðeins einu marki Framara, en hvort það sé sanngjarnt er ég ansi efins um.
Bestu leikmenn
1. Michael Akoto - KR
Akoto var stórkostlegur í vörn KR ásamt reyndar Finni Tómasi sem fór meiddur af velli í hálfleik, án þeirra og Arnars í markinu hefði Fram átt að ganga frá þessum leik í fyrri hálfleik.
2. Aron Sigurðarson - KR
Mark, stoðsending, jöfnun á markameti, klárar 2. sætið í deildinni fyrir sitt lið, hann þarf bara að fá virðinguna sem hann á skilið fyrir sína frammistöðu í allt sumar.
Atvikið
Skallavarsla Arnars þegar Kennie lét vaða fyrir aftan miðju, stórkostlegt atvik!
Hvað þýða úrslitin?
KR svo gott sem klárar 2. sætið í deildinni með þessum sigri og tryggir sig þannig inn í 2. umferð Sambandsdeildarinnar næsta sumar.
Vondur dagur
Róbert Hauksson getur klórað sér í höfðinu yfir nokkrum stöðum og færum sem hann gerir ekki nógu vel í, sama má segja með Fred sem var algjör auli að gera ekki betur sérstaklega í fyrri.
Dómarinn - 9
Stórkostlegur leikur hjá Ívari og hans teymi.




