Fotbolti.net
Besta deildin
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Besta karla - Efri hluti
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
0 - 0
KR
KR
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Fyrir leik
KR-ingar fyrir ofan Fram.
Eins og taflan sýnir okkur eru Vesturbæingar með stigi meira en heimamenn og sömuleiðis með yfirburði í markatölu.

Ég vonast til þess að við fáum opinn og skemmtilegan leik hérna í kvöld, þó það sé ágætlega mikið undir enda fer 2. sætið beint inn í 2. umferð Sambandsdeildarumspilsins en fær þó greitt eins og það hafi unnið fyrsta einvígið.
Fyrir leik
Ívar Orri á flautunni!
Birkir Sigurðarson og Eysteinn Hrafnkels verða Ívar til halds og trausts.
Nánar má lesa um dómaraskipan í umferðinni TEXT" target="_blank">hér.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gummi Torfa fór yfir sviðið í viðtali við Steinke:
Nánar má sjá viðtalið við formann Fram í hlekknum hér.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spámaðurinn Anton Ingi segir:
Fram 3 - 2 KR (19:15 á morgun)
Reykjavíkurleikirnir gerast ekki mikið stærri en þessi. Stúkan í Dalnum er farin að hristast og stefnir í nýjan þjóðhátíðardag í Dal draumanna. Leikurinn verður mun opnari en fólk spáir fyrir og byrja Framarar sterkt með Róbert Hauksson fremstan í flokki sem sleppur innfyrir og skorar fyrsta mark leiksins. KR-ingar eru þekktir fyrir skjótsvör og mun Aron Sig halda sínu formi áfram og skora draumamark strax í kjölfarið. Framarar mæta harðir til leiks í seinni halfleik og mun fyrrum KR kóngurinn Kennie skora með skalla eftir hornspyrnu og Fred mun fylgja í kjölfarið með mark úr aukaspyrnu. Galdur klórar í bakkan undir restina en það verður of seint og Framarar taka bílstjórasætið í baráttunni um 2. sætið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton er þjálfari kvennaliðs Fram.
Fyrir leik
Kvöldið kæru lesendur!
Og verið velkomin í beina textalýsingu frá slagnum um 2. sætið í Bestu deild karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.