Leik lokið!
Ég þakka fyrir mig í dag. Viðtöl og skýrsla koma inn seinna í kvöld.
92. mín
MAAAARK!
Ágústa María Valtýsdóttir
Ágústa að skora sárabótarmark fyrir ÍBV.90. mín
MAAAARK!
Elísa Birta Káradóttir (stoðsending: Birta Birgisdóttir)
Þetta var furðulegt. Varnarmaður ÍBV missir af boltanum og dettur, Elísa fær frekar þægilegt færi sem hún smellir í hornið framhjá Guðnýju.88. mín
Santa með skemmtileg tilþrif í bakverðinum.
88. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtTinna Hrönn Einarsdóttir
Markaskorarinn að koma útaf.
86. mín
Allison búin að vera góð í þessum leik og hefur heldur betur komið með power.
86. mín
InnPetra Metta Kristjánsdóttir
ÚtAllison Patricia Clark
82. mín
Olga með flotta spyrnu en Taylor slær boltann út fyrir teiginn.
82. mín
ÍBV fær horn
80. mín
ÍBV hafa komist örlítið meira inn í leikinn og eru byrjaðar að ógna meira.
79. mín
ÍBV kallar eftir víti. Kristín Klara lendir í samstuði við varnarmann Gri/Nja og þær vilja fá víti.
75. mín
InnBirta Birgisdóttir
ÚtJúlía Ruth Thasaphong
74. mín
Gult spjald
Allison Grace Lowrey
Nýkomin inn á og sækir sér gult72. mín
Gult spjald
Viktorija Zaicikova
Viktorija að fá gult spjald. Hún var ekki sátt með Guðmund og lét í sér heyra.69. mín
ÍBV að gera þrefalda skiptingu á sínu liði.
69. mín
InnAllison Grace Lowrey
ÚtEdda Dögg Sindradóttir
69. mín
InnErla Hrönn Unnarsdóttir
ÚtEydís María Waagfjörð
69. mín
InnMilena Mihaela Patru
ÚtFridrikka Marie Clementsen
64. mín
Sláin!!!
AUUU Kristín Klara með sláarskot.
59. mín
Taylor gerir vel og grípur boltann af miklu öryggi.
58. mín
Hayden með góða tæklingu í boxinu sem endar í hornspyrnu.
56. mín
ÍBV fær hornspyrnu sem skilar engu.
52. mín
Emerson með fína fyrirgjöf en stelpurnar í Gri/Nja of seinar með hlaupin.
49. mín
MAAAARK!
Tinna Hrönn Einarsdóttir (stoðsending: Ása Björg Einarsdóttir)
Seinni hálfleikur byrjar heldur betur sterkt hjá Gri/Nja! Ása kemur með frábæra fyrirgjöf meðfram jörðinni sem Tinna klárar af öryggi í vinstra hornið. Það er komið fjör í leikinn!46. mín
InnViktorija Zaicikova
ÚtHelena Hekla Hlynsdóttir
Bæði lið gera breytingar.
46. mín
InnSanta Sanija Vuskane
ÚtKatrín Lilja Ármannsdóttir
Bæði lið gera breytingar.
45. mín
Hálfleikur
Ekki mikið að frétta í þessum leik en Gri/Nja hafa verið öruggari á boltanum og ógnað töluvert meira. ÍBV á þó sína kafla og hafa komist í fínar stöður. Það hafa þó ekki komið almennileg færi í þessum leik.
45. mín
Önnur hornspyrna fyrir Gri/Nja sem endar í markspyrnu.
44. mín
Gri/Nja halda ennþá í boltann.
43. mín
Gri/Nja fá hornspyrnu.
40. mín
Gri/Nja sterkari í boxinu og hreinsa.
40. mín
ÍBV fær hornspyrnu
38. mín
Aukaspyrna
ÍBV með aukaspyrnu á fínum stað en Helena skilar ekki nógu góðum bolta inn í teig.
36. mín
Klaufalegt
Tinna Hrönn Einarsdóttir
Tinna rífur vel í treyju beint fyrir framan nefið á Guðmundi og fær í kjölfarið gult spjald.34. mín
Gri/Nja halda skemmtilega í boltann fyrir utan teig ÍBV. Mikil yfirvegun!
29. mín
ÍBV að gera vel í pressunni og endar boltinn fyrir Eddu Dögg sem hittir boltann ekki alveg nógu vel.
27. mín
Kristín Klara með skot sem fer yfir.
24. mín
ÍBV stelpur hafa verið í bölvuðu basli í uppspilinu.
22. mín
ÍBV stelpur eru komnar betur inn í leikinn og eru byrjaðar að ógna.
20. mín
Boltinn kominn yfir á vallarhelming Gri/Nja. ÍBV nær fyrirgjöf en heimakonur eru sterkari inn í boxinu.
18. mín
ÍBV skallar boltann í burtu
17. mín
Gri/Nja með sendingu á bakvið en Guðný Geirs gerir þetta vel og boltinn endar í hornspyrnu.
15. mín
Nálægt
Það kom fyrirgjöf inn á Eydísi og hefði boltinn auðveldlega getað endað í markinu. ÍBV ekki langt frá því að skora þarna.
10. mín
ÍBV með fyrirgjöf sem endar í höndunum á Taylor
7. mín
Horn
Gri/Nja fá horn sem endar í markspyrnu ÍBV
6. mín
Heimakonur að ógna
Heimakonur byrja þetta sterkt og hafa ógnað meira en gestirnir
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn
Gestirnir sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Natasha heiðruð fyrir leik
Natasha er að leggja skóna á hilluna eftir alveg hreint frábæran feril!
Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna
Nú hafa liðin mæst tvisvar fyrr í sumar. Fyrri leikurinn fór 1-1 og seinni leikurinn 4-2 fyrir Grindavík/Njarðvík. Grindavík/Njarðvík situr nú á botni efri hlutans með 22 stig og eru ekki langt á eftir Þrótti Reykjavík sem eru í 5.sæti með 23 stig. ÍBV konur hafa komið skemmtilega á óvart í sumar og eru í 3.sæti með 27 stig.
Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík konur koma úr leik á móti Stjörnunni í Garðabænum, þar áttu liðin jafnan leik sem fór 0-0.
Anita Bergrán Eyjólfsdóttir gekk í raðir Grindavík/Njarðvík og skrifaði undir samning til 2029. Anita er miðjumaður sem er fædd árið 2006 og kemur frá Keflavík sem spila í Lengjudeildinni.

Anita Bergrán Eyjólfsdóttir gekk í raðir Grindavík/Njarðvík og skrifaði undir samning til 2029. Anita er miðjumaður sem er fædd árið 2006 og kemur frá Keflavík sem spila í Lengjudeildinni.

Fyrir leik
ÍBV
ÍBV konur koma úr erfiðum leik þar sem þær töpuðu 5-0 fyrir FH.
Einnig fékk þjálfari liðsins Jón Óli rautt spjald í þeim leik og verður hann því ekki með okkur í dag.

Einnig fékk þjálfari liðsins Jón Óli rautt spjald í þeim leik og verður hann því ekki með okkur í dag.

Fyrir leik
Guðmundur Páll er á flautunni
Aðaldómari leiksins er Guðmundur Páll Friðbertsson og honum til halds og trausts verða þeir Nour Natan Ninir og Bryngeir Valdimarsson.
Fjórði dómari í dag er Breki Sigurðsson og eftirlitsmaður KSÍ er Jóhann Gunnarsson.

Fjórði dómari í dag er Breki Sigurðsson og eftirlitsmaður KSÍ er Jóhann Gunnarsson.





