Leik lokið!
ÍBV vinnur sanngjarnan 3-1 heimasigur.
93. mín
Sverrir Páll með skalla að marki af stuttu færi en það er beint á Ara.
90. mín
+3 í uppbótartíma.
90. mín
FH fær hornspyrnu sem ekkert verður úr.
89. mín
Frekar lítið að frétta akkurat núna.
84. mín
InnSigurður Valur Sigursveinsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
84. mín
InnLiam Daði Jeffs
ÚtOmar Sowe
82. mín
3-1!!
Arnór Ingi Kristinsson (stoðsending: Róbert Elís Hlynsson)
Róbert Elís fékk boltann frá Felix. Róbert setur boltann í fyrsta á Arnór Inga sem leggur boltann í fjærhornið fram hjá jökli!80. mín
FH minnka muninn!!
Kjartan Kári Halldórsson
Kjartan Kári tekur skotið úr aukaspyrnunni og setur boltann fram hjá Ara í marki ÍBV.79. mín
FH fær aukaspyrnu á góðum stað rétt fyrir utan teig.
75. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtSigurður Arnar Magnússon
74. mín
InnBenjamín Bæring Þórsson
ÚtGils Gíslason
74. mín
ÍBV komið í 2-0!
Viggó Valgeirsson (stoðsending: Omar Sowe)
Omar fær boltann frá Vicente hægra megin. Hann sendir boltnn fyrir á Viggó sem klárar vel fram hjá Jökli.72. mín
Omar í færi!
Vicente með frábæra sendingu í gegn á Omar. Hann kemur sér í skotfæri en skotið fer langt fram hjá markinu.
68. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtEmil Gautason
68. mín
InnSesar Örn Harðarson
ÚtHeiðmar Þór Magnússon
67. mín
Kjartan Kári með hættulega fyrirgjöf á Kristján Flóka en hann nær ekki að koma sér í skotfæri og Eyjamenn koma boltanum frá.
66. mín
InnÁsgeir Steinn Steinarsson
ÚtBaldur Kári Helgason
65. mín
Kjartan Kári með fyrirgjöf inn á teig ÍBV sem fer fram hjá öllum og í hendurnar á Ara.
62. mín
KJARTAN KÁRI!!!
Baldur Kári kemur boltanum á Kjartan Kára sem reynir að setja boltann í fjærhornið en boltinn fer í stöngina!!
59. mín
InnRóbert Hugi Sævarsson
ÚtTómas Orri Róbertsson
59. mín
InnArngrímur Bjartur Guðmundsson
ÚtÍsak Óli Ólafsson
58. mín
Vicente með aukaspyrnu fyrir ÍBV. Hann tekur skotið en það er langt fram hjá.
57. mín
Gult spjald
Tómas Orri Róbertsson
55. mín
FH fær aukaspyrnu sem Kjartan Kári tekur. Hann rennur boltanum á Jóa sem tekur skotið en það er laust og auðvelt fyrir Ara.
51. mín
Gult spjald
Ísak Óli Ólafsson
Tekur Omar Sowe niður.50. mín
Hætta inn á teig ÍBV og eftir mikið klafs nær ÍBV að koma boltanum í burtu.
46. mín
InnSverrir Páll Hjaltested
ÚtGuðmundur Andri Tryggvason
FH með eina breytingu í hálfleik.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur!
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikstölfræði

45. mín
Hálfleikur
ÍBV leiðir 1-0 í hálfleik í frekar jöfnum leik.
45. mín
+2 í uppbótartíma.
42. mín
Kjartan Kári með hörkuskot fyrir utan teig og það er fer í slánna!!
41. mín
Kjartan Kári kom með boltann inn á teiginn úr hornspyrnu. Omar skallar boltann frá beint fyrir Gils sem lætur vaða en skotið fer fram hjá markinu.
38. mín
Rautt spjald
Bjarki Björn Gunnarsson
Fær sitt annað gula spjald fyrir stimpingar við Guðmund Andra. Bjarki virtist hrinda honum.37. mín
Gult spjald
Bjarki Björn Gunnarsson
Fyrir að stoppa skyndisókn.36. mín
HAAA!!! Hvernig skora ÍBV ekki þarna!!
Omar er sloppinn einn í gegn og setur boltann í stöngina fram hjá Jökli. Heiðmar tekur frákastið og er með opið mark en hann nær einhvern veginn að setja boltann í slánna!! Það var auðveldara að skora þarna en ekki.
32. mín
Arnór fór upp hægri kantinn og kemur með hættulegan bolta inn á teiginn. Varnarmenn FH ná að koma boltanum í horn rétt áður en Omar nær til hans.
31. mín
FH kemur boltanum í netið. Kristján Flóki eftir skalla frá Guðmundir Andra en flaggið fer á loft.
27. mín
FH fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teig. Kjartan Kári tekinn niður. Hann tekur skotið úr spyrnunni en það er yfir markið.
25. mín
Gult spjald
Felix Örn Friðriksson
Togar í Gils.23. mín
FH fær aftur aukaspyrnu á fínum stað fyrir utan teiginn. Kjartan Kári lætur bara vaða en Ari nær að slá boltann aftur fyrir og FH fær horn.
21. mín
Kjartan Kári með spyrnuna inn á teiginn og Tómas Orri nær skotinu en það fer í einhvern frá ÍBV. Boltinn barst svo til Olivers og hann fer í skotið en það er hátt yfir.
20. mín
FH fær aukaspyrnu á fínum stað rétt fyir utan teig nálægt endalínunni.
18. mín
Alex með skemmtilega sendingu í gegn á Heiðmar en fyrsta snertingin svíkur Heiðmar og ekkert verður úr færinu.
16. mín
Gult spjald
Guðmundur Andri Tryggvason
15. mín
Emil og Bjarki með fínt samspil og Bjarki kemur sér í skotið en FH ingar ná að koma sér fyrir það og koma boltanum burt.
12. mín
Omar kemur ÍBV í 1-0!
Omar Sowe (stoðsending: Arnór Ingi Kristinsson)
Frábærlega spilað hjá ÍBV sem endar á Arnór Ingi fær boltann hægra megin. Hann kemur með góðan bolta með jörðinni inni á teiginn og Omar klára örugglega í hornið.9. mín
Omar næstum sloppinn einn í gegn eftir langan boltan fram frá Ara í markinu. Ísak Óli nær svo að koma sér fyrir skotið frá honum.
7. mín
FH í færi!!
Kristján Flóki fékk boltann hægra meginn og kemur með hættulegan bolta inn á teiginn á Tómas Orra sem tekur skotið í fyrsta en það er nokkurn veginn beint á Ara.
3. mín
ÍBV í sókn!
Alex kemur með sendingu í gegn á Omar Sowe og hann nær sendingu fyrir en Jökull gerir vel í markinu og slær boltann í burtu.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér í Eyjum. Gestirnir byrja!
Fyrir leik
Öryggið sprakk í nýju flóðljósunum og er því smá töf á leik.
Fyrir leik
Þrjár breytingar hjá ÍBV og ein hjá FH
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, gerir fjórar breytingar frá tapinu gegn Þór í síðustu umferð. Emil Gautason sem fæddur er 2010 byrjar sinn fyrsta leik í Bestu deildinni og Heiðmar Þór Magnússon sem fæddur er 2008 gerir slíkt hið sama. Heiðmar er yngri bróðir Sigurðar Arnars sem sömuleiðis er í byrjunarliðinu. Omar Sowe kemur líka inn í byrjunarliðið. Milan Tomic tekur út leikbann, Aron Lucas Vokes er ekki með og Róbert Elís Hlynsson tekur sér sæti á bekknum.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, gerir eina breytingu frá sigrinum gegn Val í síðustu umferð. Guðmundur Andri Tryggvason kemur inn fyrir Adolf Daða sem skráður er á meðal varamanna.

Leikurinn hefst klukkan 17:00. Hann átti upphaflega að vera spilaður á morgun en vegna veðurs var leiknum flýtt. Fótbolti.net ræddi við Jóa Kalla um undirbúninginn.
Óvíst hvort Adolf Daði nái leiknum
„Við fórum með hluta af hópnum í gær. Það er stór hluti kominn til Eyja, það kom svo pínu á óvart þessi breyting í morgun að það væri farið frá Landeyjum í dag, en ég held að við náum þessu flestallir. Stór hluti af hópnum fór frá Þorlákshöfn í gær, við gáfum mönnum val hvort þeir færu í gær eða í dag. Það voru einhverjir með skuldbindingar sem var ekki hægt að hætta við og því skiptist hópurinn upp. Svo var því breytt eldsnemma í morgun að hætta að sigla frá Þorlákshöfn og því farið frá Landeyjum, það þarf því að keyra töluvert lengra, en siglingin þægilegri þar sem það er fínasta veður núna," segir Jói Kalli.
Að þið flestallir náið þessu, hvað þýðir það?
„Það er spurning með Adolf Daða, hann var í prófi núna í morgun og nær ekki bátnum frá Landeyjahöfn núna klukkan 10:45, hefði náð honum ef það hefði verið siglt úr Þorlákshöfn. Það er óvíst hvort það verði aftur siglt úr Landeyjahöfn í dag og ef það verður ekki þá nær hann ekki leiknum."
Allir hlynntir því að spila frekar í dag
Leikdegi var breytt með skömmum fyrirvari, hefur það áhrif á undirbúninginn?
„Nei, nei, breytingum fylgja alltaf pínu rót en við náðum að leysa þetta þannig að gefa mönnum kost á því að fara degi fyrr og gista í Eyjum þannig það var bara allt í lagi og svo fyrst að það er siglt núna úr Landeyjahöfn þá er það mikið þægilegra ferðalag. Þetta ætti því að hafa minniháttar áhrif og bara fínasta veður í Eyjum núna þannig það er bara allt í góðu."
Kannski bara jákvætt að það sé spilað í góðu veðri og meiri líkur á betri fótbolta?
„Það á náttúrulega að verða mikið verra veður á morgun og það voru allir hlynntir því að spila frekar í dag í góðu veðri, það er betri niðurstaða þegar uppi er staðið myndi ég halda."
Vilja halda áfram að þróa leik sinn
Hvernig nálgist þið lokaleikina tvo?
„Sama og öll úrslitakeppnin hefur verið, höldum áfram að spila okkar leik og það er alltaf tími fyrir bætingar og tími til að halda áfram að þróa liðið. Við viljum náttúrulega bara fara inn í alla leiki til þess að vinna. Þetta snýst um hugarfarið er andlega þáttinn. Við viljum halda áfram að spila okkar leik og halda áfram að þróa því við erum náttúrulega ungt lið og það eru ekkert margir sem hafa spilað mikið og lengi saman þannig að við getum nýtt upp þennan tíma til þess að búa til sambönd á milli leikmanna og reynslu manna á milli og halda áfram að þróa okkar leik. Það skiptir okkur miklu máli," segir Jói Kalli.
Missir mögulega af leiknum í Eyjum - „Allir hlynntir því að spila frekar í dag

Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Aðstoðardómarar: Eysteinn Hrafnkelsson og Ronnarong Wongmahadthai.
Fjórði dómari: Hreinn Magnússon.
Dómaraeftirlitsmaður: Egill Már Markússon.
Plötusnúðurinn er með flautuna

Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Aðstoðardómarar: Eysteinn Hrafnkelsson og Ronnarong Wongmahadthai.
Fjórði dómari: Hreinn Magnússon.
Dómaraeftirlitsmaður: Egill Már Markússon.
Fyrir leik
ÍBV er fallið úr Bestu deildinni þegar tvær umferðir eru eftir, ljóst varð fyrir viku síðan að ÍBV spilar í næstefstu deild næsta sumar. Í Innkastinu var umferðin í Bestu deildinni gerð upp og var rætt um ÍBV.
ÍBV hefur ekki unnið leik síðan í byrjun júlí og einungis tekið fjögur stig úr síðustu tólf leikjum sínum. ÍBV hafði þar á undan tekið 14 stig af 18 mögulegum fyrri part sumars.
„Þeir voru þá heitasta lið deildarinnar, náðu að safna stigum þar. En heilt yfir er mjög auðvelt að segja að þetta sé bara lélegasta lið deildarinnar og eigi skilið að falla," segir Valur Gunnarsson.
„Það er mjög furðulegt að lið geti kveikt á sér í sex leikjum en svo slokknar alveg á þeim aftur," segir Kári Snorrason.
„Það er auðvelt að benda á félagaskiptagluggann. Öll liðin í kringum þá styrktu sig með leikmönnum. KA endar svo á að fá nýjan þjálfara inn. Öll liðin voru að gera eitthvað en það var lítið að frétta af ÍBV. Það kom í ljós að hópurinn var ekki nógu stór. Omar Sowe var mikið frá vegna meiðsla og það munar mikið að missa hann. Það var ákveðið stemningsleysi og deyfð yfir þessu. Það kemur oft orka inn með nýjum leikmönnum," sagði Valur.
Aron Lucas Vokes kom á láni frá Selfossi en annars var lítið að frétta hjá Eyjamönnum í glugganum.
„Þeir fá risastóran mínus fyrir að hafa gert sama sem ekki neitt í sumarglugganum," segir Elvar Geir.
Valur bendir á að mögulega sé það sé ein af stóru ástæðunum fyrir því að liðið sé þegar fallið á þessum tímapunkti.
Ari spilað verr eftir að Marcel fór
Christian Greko Jakobsen skoraði eina mark leiksins fyrir Þór á 30. mínútu og leit Ari í Haraldsstovu Petersen, Færeyingurinn í marki ÍBV, ekki vel út í því marki.
„Ein af ástæðunum fyrir því að þeir falla er sú að Ari er ekki búinn að vera nægilega góður í sumar og hann gerir slæm mistök," segir Elvar.
„Á þessum kafla þar sem þeir voru á skriði fannst mér hann vera að spila vel og við hrósuðum honum í sumar. Hann er fínn í löppunum og það held ég að sé ástæðan fyrir því að Linta gerir þessa breytingu. En þeir voru með Marcel Zapytowski," segir Valur.
„Og Marcel var talinn einn af betri markmönnum deildarinnar á síðasta ári," segir Kári.
„Mögulega var þessi ákvörðun ekki rétt hjá Linta því að um leið og Marcel hætti að vera á bekknum þá hætti Ari að geta nokkurn skapaðan hlut," segir Valur.
Deyfð yfir ÍBV
„Það er glatað að Eyjamenn séu að falla og það sé svona mikil deyfð yfir þessu. Þeir voru einu marki frá því að vera í topp sex í fyrra. Svo hættir Láki og Linta endar á því að koma. Það er eins og stemningin hafi einhvern veginn dottið niður," segir Valur.
„Þeir féllu í gær (laugardag) en maður finnur ekkert fyrir því. Maður heyrir ekkert um það," segir Elvar.
„Þetta er eitthvað sem Keflvíkingar þurfa að hafa í huga, þetta er fljótt að breytast. Ég er svolítið spenntur að sjá hvað mun gerast hjá Eyjamönnum núna," segir Valur.
Aleksandar Linta skrifaði undir þriggja ára samning við ÍBV en hann vildi ekki ræða framtíð sína eftir tapið gegn Þór síðasta laugardag.
Eyjamenn fallnir

FH hefur unnið þrjá leiki í röð og er svo gott sem búið að tryggja sér áframhaldandi veru í Bestu deildinni. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH stefnir á að halda sigurgöngunni áfram þegar liðið heimsækir ÍBV.
„Frammistaðan hefur verið fín hjá okkur í ansi langan tíma og það er alltaf sætt að fá þessa sigra. Við erum komnir á gott ról og ætlum að halda áfram á sömu braut, fara til Eyja og sækja annan sigur þar,“ sagði Jóhannes eftir 5-3 útisigur gegn Val í síðustu umferð.
FH áfram í Bestu

ÍBV mætir FH í 26. umferð Bestu deildarinnar
Heil og sæl, verið velkomin í þessa beinu textalýsingu.