SKÝRSLAN: Grindavík/Njarðvík sækja þrjú stig á heimavelli
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn fór mjög hægt af stað og var lítið sem ekkert um færi hjá báðum liðum. Maður sá samt strax að Grindavík/Njarðvík voru töluvert yfirvegaðri á boltann og skipulagðari. Í seinni hálfleik kom Grindavík/Njarðvík sterkari til leiks og skora í kjölfarið.
Bestu leikmenn
1. Emersen Jennings
Mikill kraftur í henni og var hún lang hættulegust í liði heimakvenna.
2. Elísa Birta Káradóttir
Elísa hefur verið mjög öflug þrátt fyrir ungan aldur. Fannst hún koma vel inn í leikinn í dag og ekki skemmir það fyrir henni að hafa skorað.
Atvikið
Markið sem Tinna Hrönn skoraði gaf Grindavík/Njarðvík meira öryggi inn í leikinn og orkan hjá liðinu magnaðist.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV heldur 3.sætinu með 30 stig og Grindavík/Njarðvík eru komnar upp í 4.sætið með 29 stig.
Vondur dagur
Mér fannst engin í ÍBV liðinu eiga áberandi versta daginn þannig verð eiginlega að gefa liðinu þennan titil. Fannst þær bara ekki mæta til leiks og það var eins og að þær væru hálf stressaðar.
Dómarinn - 6
Ekki hægt að setja mikið út á Guðmund í dag en fannst hann frekar ójafn út leikinn.



