Fotbolti.net
Besta deildin
Andri Stefánsson
Andri Stefánsson
Besta karla - Efri hluti
Meistaravellir
KR
KR
8 - 3
Breiðablik
Breiðablik
Aron Sigurðarson 11'1 - 01 - 125' Þorleifur ÚlfarssonSigurður Breki Kárason 27'2 - 1Sigurður Breki Kárason 29'3 - 13 - 237' Sigurður Breki Kárason (sjm)Galdur Guðmundsson 39'4 - 2Arnór Ingvi Traustason 52'5 - 2Fannar Heimisson 72'6 - 26 - 374' Birkir ÞorsteinssonAron Sigurðarson 89'7 - 3Galdur Guðmundsson 90'8 - 3
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Leik lokið!
+1
Sigurður flautar þetta af.
KR
90. mín
KR-INGAR ERU BÚNIR AÐ SKORA ÁTTA MÖRK!

Galdur Guðmundsson

Sigurður Breki fær boltann inni á teignum.

Hann finnur Galdur sem gerir virkilega vel, fer á vinstri og setur boltann í fjærhornið.
KR
89. mín
ARON SLÆR MARKAMETIÐ!

Aron Sigurðarson (stoðsending: Sölvi Snær Ásgeirsson)

Sölvi Snær kemst upp að endamörkum.

Hann leggur boltann út á Aron Sig sem skorar í fyrstu snertingu.

Aron slær markametið, magnaður áfangi.
88. mín
KR fær horn.

Gylfi handsamar knöttinn eftir fyrirgjöf.
Breiðablik
87. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtÞorleifur Úlfarsson
85. mín
Blikar fá horn.

Kristinn Narfi nær skoti en það fer beint í lúkurnar á Arnari.
KR
83. mín
InnÍsleifur Gunnar Eysteinsson
ÚtFannar Heimisson
Ísleifur að koma inn á í sínum fyrsta leik.
Breiðablik
74. mín
BLIKAR KLÓRA Í BAKKANN!

Birkir Þorsteinsson (stoðsending: Aron Bjarnason )

KR-ingar eru fáir til baka og Blikar nýta sér það.

Aron Bjarna potar boltanum áfram á Birki sem keyrir að marki heimamanna og setur boltann framhjá Arnari.
Breiðablik
73. mín
InnBirkir Þorsteinsson
ÚtViktor Karl Einarsson
KR
73. mín
InnSölvi Snær Ásgeirsson
ÚtÁstbjörn Þórðarson
KR
73. mín
InnJón Ernir Ragnarsson
ÚtHrafn Tómasson
KR
73. mín
InnAron Þórður Albertsson
ÚtArnór Ingvi Traustason
KR
72. mín
FANNAR AÐ SKORA SITT FYRSTA MARK!

Fannar Heimisson (stoðsending: Sigurður Breki Kárason)

Frábært samspil KR-inga endar með því að Sigurður Breki potar boltanum á Fannar.

Fannar tekur eina snertingu áður en hann leggur boltann laglega framhjá Gylfa.
70. mín
KR fær horn eftir skot Sigurðar Breka.

Boltinn kemur inn á teiginn en Blikar bægja hættunni frá.
69. mín
Arnar Freyr stendur mjög ofarlega og Kristófer Ingi reynir skot á eigin vallarhelmingi en engin hætta í skotinu.
67. mín
Gabríel Hrannar fær boltann í frábærri stöðu inni á teig gestanna en hittir boltann ekki almennilega. KR fær þó horn.

Boltinn kemur inn á teiginn en Blikar hreinsa frá.
65. mín
Fannar nær að pota boltanum að marki Blika en Gylfi ver í horn.

Ekkert verður úr horninu.
64. mín
KR fær horn.

Ekkert verður úr horninu.
62. mín
Breiðablik fær horn.

Þeir taka þetta stutt og síðan kemur fyrirgjöf sem ratar beint á pönnuna á Kristófer Inga sem skallar framhjá.
59. mín
Davíð Ingvars vinnur horn.

Boltinn kemur inn á teiginn og Arnór hreinsar í annað horn.

Seinna hornið flýgur yfir allan pakkann.
Breiðablik
57. mín
InnKristófer Ingi Kristinsson
ÚtGabríel Snær Hallsson
Breiðablik
57. mín
InnAron Bjarnason
ÚtJónatan Guðni Arnarsson
Breiðablik
57. mín
InnÓli Valur Ómarsson
ÚtDagur Örn Fjeldsted
KR
57. mín
InnHjalti Sigurðsson
ÚtOrri Hrafn Kjartansson
Breiðablik
56. mín
Gult spjald

Þorleifur Úlfarsson

Tuð.
56. mín
Boltinn er í netinu en hendi dæmd
Þorleifur kemur boltanum í markið en hendi dæmd.
55. mín
Aron Sig fer inn á vinstri fótinn og lætur vaða en skotið er máttlaust og Gylfi grípur boltann.
KR
52. mín
KR-INGAR BÆTA BARA VIÐ!

Arnór Ingvi Traustason (stoðsending: Sigurður Breki Kárason)

Aron Sig neglir boltanum í slána úr aukaspyrnunni. Boltinn dettur í kjölfarið fyrir Ástbjörn.

Ástbjörn finnur Sigurð Breka inni á teignum sem sendir á Arnór Ingva. Arnór klárar vel framhjá Gylfa í fyrstu snertingu.
51. mín
Aron Sig vinnur aukaspyrnu fyrir KR á stórhættulegum stað.
46. mín
Aron Sig sparkar þessu í gang á ný
45. mín
Hálfleikur
Alvöru skemmtun!
Bæði lið hafa spilað virkilega skemmtilegan fótbolta en KR-ingar hafa fengið betri færi.
45. mín
Breiðablik fær hornspyrnu.

Þeir taka þetta stutt og Dagur kemur með boltann inn á teiginn en Arnar handsamar boltann.
Breiðablik
44. mín
Gult spjald

Viktor Karl Einarsson

Rífur Aron Sig niður.
42. mín
Boltinn er í netinu en flaggið fer á loft
Þorleifur skorar en eftir dágóða stund fer flaggið á loft.
KR
39. mín
SANNKALLAÐ MARKAREGN Á MEISTARAVÖLLUM!

Galdur Guðmundsson (stoðsending: Sigurður Breki Kárason)

Sigurður Breki laumar boltanum á Galdur sem er einn á auðum sjó.

Galdur leggur boltann síðan fagmannlega framhjá Gylfa í marki Blika.

Alvöru svar frá Sigurði Breka!
Breiðablik
37. mín
Virkilega furðulegt mark

Sigurður Breki Kárason (sjm)

Viktor Karl kemur boltanum á Dag Örn sem kemst upp að endamörkum og kemur boltanum fyrir.

Boltinn á viðkomu í Gabríel Snæ en síðan fer boltinn í kassann og Sigurði Breka og lekur þaðan í netið.

Blikar allt í einu komnir aftur inn í leikinn!
35. mín
Blikar fá horn.

Boltinn kemur inn á teiginn og Blikar fá annað horn.

Ekkert verður úr seinna horninu.
35. mín
Dauðafæri!
Aron Sig með sturlaða utan fótar sendingu í gegn á Galdur sem keyrir inn á teig gestanna en Gylfi lokar á hann.
34. mín
Davíð Ingvars setur boltann í svæðið fyrir Jónatan sem reynir fyrirgjöf en Finnur Tómas hreinsar frá.
KR
29. mín
MAAARKKKK!

Sigurður Breki Kárason

Sigurður Breki laumar boltanum á Galdur. Galdur lætur vaða en Gylfi Berg ver meistaralega.

Blikar bjarga síðan ótrúlega á línu í baráttunni við Ástbjörn en Sigurður Breki hirðir frákastið og setur boltann í autt netið.

Rosalegar síðustu mínútur á Meistaravöllum!
KR
27. mín
KR-INGAR EKKI LENGI AÐ SVARA!

Sigurður Breki Kárason

Galdur gerir virkilega vel og kemst upp að endamörkum áður en hann finnur Sigurð Breka.

Sigurður Breki vippar boltanum snyrtilega yfir Gylfa Berg sem kemur engum vörnum við.
Breiðablik
25. mín
BLIKAR JAFNA!

Þorleifur Úlfarsson (stoðsending: Dagur Örn Fjeldsted)

Dagur Örn fær boltann úti hægra megin og keyrir upp hægri kantinn.

Hann finnur síðan Þorleif með frábærri fyrirgjöf. Þorleifur þakkar fyrir sig með því að stýra boltanum í netið.

Allt jafnt.
23. mín
Jónatan fer inn á hægri löppina og reynir að skrúfa boltann í fjærhornið en skotið fer yfir markið.
21. mín
Höskuldur keyrir að marki heimamanna og sendir boltann til hliðar á Dag Örn en skotið hans fer hátt yfir markið.
19. mín
Aron Sig finnur Ástbjörn úti hægra megin. Ástbjörn kemur með fyrirgjöf en þarna vantar KR-inga.
18. mín
Dauðafæri!
Gabríel Hrannar fær boltann í frábærri stöðu eftir flottan undirbúning. Gabríel tekur skotið en Gylfi Berg gerir sig stóran og sér við honum.
16. mín
Davíð Ingvars kemst inn á teig gestanna og reynir skot en Finnur kemst fyrir og hornspyrna niðurstaðan.

Boltinn kemur inn á nærsvæðið en Aron Sig skallar frá.
13. mín
Arnór Ingvi kemur boltanum á Aron Sig. Aron opnar skotvinkilinn og hleypir af en skotið í varnarmann og framhjá.

Arnór Ingvi kemur með boltann inn á teiginn en Blikar hreinsa frá.
KR
11. mín
ARON SIG JAFNAR MARKAMETIÐ!

Aron Sigurðarson (stoðsending: Arnór Ingvi Traustason)

Arnór Ingvi fær boltann úi hægra megin og hann er með mikið pláss

Arnór kemst upp að endamörkum og leggur boltann út á Aron Sig sem stýrir boltanum með vinstri fæti í fjærhornið, laglega gert.

Aron jafnar markametið og KR-ingar taka forystuna!
6. mín
Sigurður Breki fær boltann í góðri stöðu. Hann laumar boltanum á Fannar sem tekur eina snertingu áður en hann tekur skotið. Skotið er beint á Gylfa sem ver.
5. mín
Gabríel Hrannar reynir fyrirgjöf frá vinstri en boltinn í varnarmann og afturfyrir.

Arnór Ingvi kemur með boltann inn á teiginn en Gylfi Berg handsamar knöttinn.
4. mín
Höskuldur lyftir boltanum í gegn á Þorleif en flaggið fer á loft.
1. mín
Leikur hafinn
Við erum farin af stað!
Gestirnir hefja leik.
Fyrir leik
Kúlan hefur talað

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn!
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir fjórar breytingar á liði sínu eftir 3-2 útisigur gegn Keflavík.

Inn koma Arnar Freyr Ólafsson, Fannar Heimisson, Sigurður Breki Kárason og Orri Hrafn Kjartansson

Halldór Snær Georgsson, Luke Rae og Aron Þórður Albertsson fara á bekkinn. Eiður Gauti Sæbjörnsson er ekki með í dag.

Breiðablik gerir sex breytingar á liði sínu eftir 2-1 tap gegn Víkingi.

Inn koma Gylfi Berg Snæhólm, Dagur Örn Fjeldsted, Viktor Örn Margeirsson, Gabríel Snær Hallsson, Kristinn Narfi Björgvinsson og Þorleifur Úlfarsson.

Anton Ari Einarsson, Óli Valur Ómarsson og Birkir Þorsteinsson fara á bekkinn. Anton Logi og Ásgeir Helgi fengu rautt gegn Víkingi og Ívar Örn er mjög líklega meiddur.

Fyrir leik
Amin spáir í spilin
Amin Cosic kom inn á í Meistaradeildinni á fimmtudaginn og hann fær það verkefni að spá í spilin.

KR 4 - 2 Breiðablik
„Markaleikur í Vesturbænum! Aron slær markametið, skorar tvö mörk í leiknum og Galdur og Eiður bæta báðir við einu marki hvor."

Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna
Breiðablik vann fyrri leik liðanna 6–3 í markaveislu á Kópavogsvelli. Kristófer Ingi Kristinsson skoraði tvívegis fyrir Blika og Anton Logi Lúðvíksson, Ágúst Orri Þorsteinsson, Davíð Ingvarsson og Ívar Örn Árnason bættu við einu marki hver. Sigurður Breki Kárason skoraði tvívegis fyrir KR og Amin Cosic gerði eitt mark.

Síðari leiknum lauk með 3–3 jafntefli á heimavelli KR. Eiður Gauti Sæbjörnsson, Ástbjörn Þórðarson og Aron Sigurðarson skoruðu mörk KR en Kristófer Ingi Kristinsson skoraði tvívegis fyrir Breiðablik og Ágúst Orri Þorsteinsson bætti við einu marki.



Fyrir leik
Þrír Blikar í banni
Það verða þrír Blikar í banni í leiknum. Ásgeir Helgi Orrason, Ólafur Ingi Skúlason og Anton Logi Lúðvíksson fengu allir að líta rauða spjaldið gegn Víkingi.

Fyrir leik
Aron er einu marki frá því að jafna metið!
Fyrir leik
Sigurður Hjörtur er á flautunni
Sigurður Hjörtur Þrastarson er aðaldómari í dag. Honum til halds og trausts eru Birkir Sigurðarson og Eðvarð Þór Eðvarðsson.

Þórður Þorsteinsson Þórðarson (ÞÞÞ) er fjórði dómari. Halldór Breiðfjörð Jóhannsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lokaumferðin í Bestu!
Góðan og gleðilegan laugardag, kæru lesendur, og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Meistaravöllum.

Í dag tekur KR á móti Breiðabliki í síðustu umferð Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 14:00.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið í beinni á X977 klukkan 18
Mynd: Fótbolti.net

Umferðin verður gerð upp í sérstökum lokaþætti Innkastsins sem verður í beinni á X977 klukkan 18:00. Þátturinn kemur síðan inn á hlaðvarpsveitur í kjölfarið.

Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (Akraneshöllin)
16:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.