Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurður Bibbi
Besta karla - Neðri hluti
Greifavöllurinn
Á KA vellinum er logn, smá snjómugga annað slagið, hitinn við frostmark
KA
KA
5 - 1
ÍBV
ÍBV
Jakob Snær Árnason 3'1 - 01 - 117' Heiðmar Þór MagnússonMikael Breki Þórðarson 38'2 - 1Hallgrímur Mar Steingrímsson 45'3 - 1Hallgrímur Mar Steingrímsson 57'4 - 1Adam Ægir Pálsson 70'5 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 745 áhorfendur
Myndir: Bibbi

SKÝRSLAN: Auðveldur sigur en erfiður endir

Hvað réði úrslitum?

Barátta KA manna eftir að ÍBV jafnaði. Það lifnaði yfir KA, sérstaklega þegar þeir ná marki nr. 2. Þá fór þetta að rúlla og það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda. Bara hve stór hann yrði.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar

Enn einn stórleikur Hallgríms. Það verður seint sagt að hann leggi sig ekki fram í leikjum. Tvö mörk í dag og flott tilþrif

2. Guðjón Hrafnkelsson

Guðjón átti stórgóðan leik, var upp og niður kantinn eins og Þröstur hinn vængjaði varamaður fótboltafélagi Fals. Hann skapaði ótal sinnum usla, átti skot í slá og vann gríðarlega vel fyrir liðið.

Atvikið

Það var ekkert eitt atvik. Eiginlega bara þegar KA hristi af sér spennuna og fór að spila eins og þeir geta best. Þá komu mörkin og leikgleðin. Því miður dugði það ekki.

Hvað þýða úrslitin?

Þetta eru einhver skrítnustu úrslit sem ég hef orðið vitni af. Stórsigur en samt niðurbrotnir leikmenn.
Þetta þýðir að KA er fallið með jöfnun á flestum stigum fallliðs 29 stig dugðu ekki að þessu sinni. Samt eru það alls ekki úrslitin í dag sem ollu þessu heldur leikir fyrr í sumar sem fóru ekki eins vel og þeir hefðu getað farið.

Vondur dagur

Vondur dagur fyrir bæði lið. Þó sýnu verri fyrir KA. Þrátt fyrir frábæran leik þá enda þeir í Lengjudeildinni að ári þar sem FH gerði lítið til að hjálpa þeim.
Bæði lið komin niður í Lengjuna og mætast því að minnsta kosti tvisvar að ári.

Dómarinn - 8

Engin stórkostleg vandræði í dag en hefði mátt dæma stundum eins beggja megin en það var ekkert stórvægilegt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.