Leik lokið!
Váááááa, þetta er búið. Þór heldur sér uppi og KA er fallið. Senur, ótrúlegt. Takk fyrir mig, skýrsla og viðtöl á leiðinni. Stuðningsmenn komnir inn á völlinn.
94. mín
Gult spjald
Kevin Vazquez Comesaña
Fyrir kvart.94. mín
Rautt spjald
Oliver Stefánsson
Seinan gula spjaldið.92. mín
InnAtli Sigurjónsson
ÚtEinar Freyr Halldórsson
91. mín
Þór fær horn en þeir taka það ekki og verja boltann við hornið.
90. mín
+4 í uppbótartíma.
89. mín
Dauðafæri
Einar tekur boltann af Jóa Bjarna, kemst framhjá einum og skýtur beint á Jökul, þetta á að vera 3-1.
86. mín
Dauðafæri
Sgifús keyrir upp hægri kantinn og sendir fram fyrir markið á Jakobsen sem tekur mjög máttlaust skot sem Jökull ver.
84. mín
Gult spjald
Ísak Óli Ólafsson
Ásbjörn með háan bolta fram á Sigfús og Ísak knúsar hann niður.83. mín
Ágúst kemst í gott færi fyrir utan teiginn, skotið er í varnarman og Jökull grípur,
80. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtSverrir Páll Ingason
80. mín
Sigfús er loksins komin á.
79. mín
Hvað er að gerast
Siggi Höskulds er brjálaður veit ekki af hverju og það þarf að ýta honum og segja honum að setjast niður. Sverrir Páll var farin út af fyrir Sigfús en það var ekki búið að gera skiptinguna, ég tók ekki eftir þessum. Þetta er smá trúða show.
76. mín
Þorri tekin niður í teignum
Þorri er tekin niður í teignum. Stuðningsmenn Þórs eru brjálaðir og eru byrjaðir að kasta glösum og flöskum inn á völlinn, hvað er að gerast. Aron markmaður og fyrirliði lætur stuðningsmenn sína heyra það.
75. mín
Dauðafæri
Þór í 3v3. Þorri með boltann og sendir á Einar sem er á fjær. Einar neglir beint á Jökul í markinu.
75. mín
KA 5-1 ÍBV
Adam Ægir með markið.
74. mín
InnFannar Daði Malmquist Gíslason
ÚtÞorri Ingólfsson
Dauðafæri
Sigfús keyrir upp hægri kantinn og sendir fram fyrir markið á Fannar sem
74. mín
InnArnór Borg Guðjohnsen
ÚtGils Gíslason
72. mín
InnBenjamín Bæring Þórsson
ÚtRóbert Hugi Sævarsson
71. mín
Kjartan með hættulega aukaspyrnu, beint á Arngrím sem skallar yfir.
71. mín
Gult spjald
Sverrir Páll Ingason
70. mín
Hætta
Þór fær horn, boltinn er skallaður burt en hann dettur á Ágúst sem tekur skotið en Jökull grípur boltann.
69. mín
Ásgeir Steinn reynir að vippa yfir vörn Þórs á Gils en Ásbjörn nær að skalla boltanum á Aron í markinu sem tekur boltann upp.
68. mín
Dauðafæri en rangstaða
Einar með svaka bolta úr aukaspyrnu inn í teig á Ásbjörn sem skallar boltann niður á Bjarna sem skýtur en Jökull ver. Áður en FH kemur boltanum burt flaggar dómarinn.
66. mín
Nálægt
Þorri fær boltann og skýtur rétt framhjá markinu, þrennan er að banka.
63. mín
Gult spjald
Oliver Stefánsson
62. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtKristófer Kristjánsson
62. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtKristján Flóki Finnbogason
62. mín
InnÁsgeir Steinn Steinarsson
ÚtAdolf Daði Birgisson
62. mín
InnArngrímur Bjartur Guðmundsson
ÚtBirkir Valur Jónsson
62. mín
Hættuleg aukaspyrna fyrir Þór. Einar kemur með góða sendingu inn í teig, Óliver nær að skalla boltann en í áttina að markinu, boltinn dettur á Bjarna sem missir hann í markspyrnu.
60. mín
KA 4-1 ÍBV
Hallgrímur Mar skorar fjórða mark KA.
59. mín
Kristófer fær boltann fyrir utan teiginn og lætur vaða, skotið fer framhjá markinu.
57. mín
Sláin
Kjartan tekur horn og sendir hátt beint á Ísak sem skallar í slána og út í markspyrnu.
56. mín
FH vill víti
FH vill hendi inn í vítateig Þórs en Helgi segir nei. Gils keyrir inn í teiginn og vippar boltanum í höndina hjá Vazquez
55. mín
Jakobsen fær boltann í hausinn, Helgi Mikael skipar Jakobsen að fara út af og fá aðhlynningu.
53. mín
Langt innkast inn í teig Þórs. Boltinn er skallaður burt en hann dettur á Jóa sem neglir boltanum yfir markið, líklega datt boltinn á eitthvern bíl.
50. mín
Ásbjörn með glataða sendingu til baka á Aron og Þór fær horn á sig. Þór nær að skalla boltann burt.
48. mín
Horn
Kjartan Kári tekur horn fyrir Þór, sending inn í teig á Ísak Óla sem skallar yfir markið.
47. mín
Þór í sókn, en þeir ná ekki skot tækifærinu og enda á því að missa boltann frá sér í markspyrnu.
46. mín
Áhorfendatölur
867 manns.
46. mín
Seinni hálfleikur
FH byrjar.
45. mín
Hálfleikur
Tölfræði fyrri hálfleiks

45. mín


Helgi Þór Gunnarsson er með myndavélina



45. mín
Hálfleikur
Vá, litla stemmingin. Leikurinn er búinn að vera frekar jafn hingað til, bæði lið eru líkleg til þess að skora. Það kom stórt atvik á 32. mínútu þar sem Þór átti að fá víti, ég enn skil ekki af hverju dómarinn dæmdi ekki víti.
KA er að vinna gegn ÍBV 3-1. Það skiptir engu máli þar sem Þór þarf að vinna leikinn sinn til þess að halda sér uppi.
KA er að vinna gegn ÍBV 3-1. Það skiptir engu máli þar sem Þór þarf að vinna leikinn sinn til þess að halda sér uppi.
45. mín
Hættaa
Kjartan Kári keyrir inn í teiginn, missir boltann frá sér en boltinn dettur á Jóa Bjarna sem sendir á Kristján Flóka sem skýtur yfir markið.
45. mín
+2 í uppbótartíma.
44. mín
Nálæggttt
Hár bolti í áttina að teig FH, Óliver skallar en boltinn dettur á Jakobsen sem vippar yfir Jökul. Rétt framhjá markinu.
42. mín
2-1 fyrir KA
Mikael Breki Þórðarson búinn að skora, staðan er 2-1. En KA er samt að falla þar sem Þór er að vinna.
41. mín
Þór í sókn en Ágúst dettur niður áður en hann nær skotinu.
40. mín
Kristján Flók brýtur á Vazquez sem liggur niðri í smá stund, Kristján reynir að sparka í boltann sem er hjá Vazquez þegar hann er niðri. Ég hef séð gult gefið fyrir þetta brot.
38. mín
Hætta
Gils fær boltann inn í teiginn og kemst í gott færi nálægt markinu, Gils neglir yfir markið.
34. mín
Kjartan Kári með sendingu inn í teig á Kristján Flóka en Vazquez blokkar sendinguna.
32. mín
Þór vill víti
Þorri keyrir upp hægri kantinn og kemst inn í teig þangað til að hann dettur niður. Baldur Kári tekur hann niður en Helgi Mikael segir nei. Stuðningsmenn Þórs og Siggi eru brjálaðir. Þetta er víti að mínu mati.
Eftir að hafa skoðað brotið í útsendingu, þá get ég sagt að þetta er pjúra víti. Helgi Mikael á að sjá þetta. Baldur stígur á Þorra.
Eftir að hafa skoðað brotið í útsendingu, þá get ég sagt að þetta er pjúra víti. Helgi Mikael á að sjá þetta. Baldur stígur á Þorra.
30. mín
Aron Birkir er sestur niður, markmaður og fyrirliði Þórs.
Hann heldur áfram að spila og tekur markspyrnuna.
Hann heldur áfram að spila og tekur markspyrnuna.
30. mín
FH í sókn. Adolf Daði sendir á Kristján Flóka sem tekur skotið sem fer rétt framhjá markinu.
29. mín
Þór í skyndisókn, Þorri með háa sendingu inn í teig sem Jökull grípur.
28. mín
Lítið að gerast akkúrat núna, leikurinn er rólegur. FH eru að halda í boltann og eru að reyna að spila sig í gegn.
25. mín
Stuðningsmenn Þórs að henda eitthverjum hlutum inn á völlinn, vallarþulurinn er að skamma þá. Ótrúleg stemming hjá Þór í dag.
24. mín
Aukaspyrna fyrir Þór, boltinn dettur niður í teignum og á Ágúst sem skýtur yfir markið.
23. mín
Það er allt að gerast, eftir að FH tók yfir leikinn þá er Þórsarar mættir til leiks og eru byrjaðir að taka yfir. Senur.
21. mín
ÍBV að jafna
Heiðmar Þór Magnússon að skora, það er 1-1. KA eru að falla, Þór er að halda sér uppi.
19. mín
Bjarni Guðjón fær boltann fyrir utan teiginn og lætur vaða beint í stöngina. Boltinn fer í stöngina og út í teiginn á Þorra sem skorar, líklegasta auðveldasta mark sem hann getur skorað á sínum ferli.
MAAAARK!
Þorri Ingólfsson (stoðsending: Bjarni Guðjón Brynjólfsson)
Jahérna hér, hvað er að gerast.Bjarni Guðjón fær boltann fyrir utan teiginn og lætur vaða beint í stöngina. Boltinn fer í stöngina og út í teiginn á Þorra sem skorar, líklegasta auðveldasta mark sem hann getur skorað á sínum ferli.
17. mín
MAAAARK!
Þorri Ingólfsson
FH fær horn, það kemur ekkert úr því, en allt í einu eru tveir Þórs leikmenn sloppnir í gegn þegar Aron neglir boltanum fram. Ágúst er sloppin í gegn en Óliver nær honum og blokkar svo skotið. Boltinn fer svo á Þorra sem skýtur beint á Jökul sem nær ekki að verja hann, Jökull átti að verja þetta.15. mín
Stönginnnnn
FH eru með öll völd inn á vellinum. Kristján Flóki fær boltann á vinstri kantinum, sendir inn í teig á Adolf sem sendir á Jóa Bjarna sem skýtur í stöngina. Hársbreidd frá því að skora annað mark leiksins. Boltinn fer á Gils sem neglir í hliðarnetið.
14. mín
Óliver Stefáns með langt innkast inn í teig Þórs, smá ping pong inn í teignum en Þór kemur boltanum burt.
12. mín
Gils fær boltann á hægri kantinum og ætlar að keyra á vörn Þórs en hann missir boltann frá sér.
10. mín
Hætta
Þór með hættulega aukaspyrnu sem Einar tekur. Góð sending inn í teig á Gyrði sem skallar framhjá.
8. mín
Þórsarar hafa fjölmennt

7. mín
Þór er að falla, þar sem KA er komið yfir 1-0.
MAAAARK!
Adolf Daði Birgisson (stoðsending: Gils Gíslason)
Hár bolti upp hægri kantinn frá Birki Val á Gils sem keyrir á vörn Þórs. Gils kemur með fyrirgjöf fram fyrir markið og Adolf hleypur inn í teiginn og neglir honum inn.Þór er að falla, þar sem KA er komið yfir 1-0.
7. mín
Hætta
Kjartan Kári fær boltann inn í teignum og skýtur rétt framhjá markinu, hefði verið fallegt.
6. mín
KA er komið yfir
Jakob Snær var að skora, 1-0 fyrir KA. Þór er að fara niður.
5. mín
Sláinnn
Þór í skyndisókn, Jökull hleypur út úr markinu og Ágúst Eðvald vippar yfir hann og boltinn fer í slána og skoppar út í teiginn þangað til að Jökull tekur boltann upp.
5. mín
Hætta
Kjartan Kári tekur aukaspyrnuna, sendingin eða skotið er beint á markið og Aron þarf að lemja boltann burt.
4. mín
FH fær aukaspyrnu við hornfánan Þórs megin á vellinum, smá stimpingar þar sem nokkrir leikmenn fara niður en Gils er tekinn niður.
2. mín
,,Velkomnir í Þorpið" syngja stuðningsmenn Þórs.
1. mín
Þórsar strax komnir í sókn, en þeir ná ekki að skot tækifæri. FH nær boltanum til baka.
1. mín
Leikur hafinn
Þórsarar byrja. Alvöru stemming á vellinum.
Hver mun falla, er það KA eða Þór? Sjáum til eftir 90 mín!
Hver mun falla, er það KA eða Þór? Sjáum til eftir 90 mín!
Fyrir leik
Stemming á vellinum
Þórsarar eru að fjölmenna og eru háværir fyrir leikinn. Mætti halda að þetta sé heimaleikur fyrir þá. Allt undir í dag og er ekkert annað hægt en að mæta með læti. Það eru nokkrir FHingar í stúkunni.
Fyrir leik
Kristalkúlan hefur talað
Ég á mjög erfitt með að lesa í þennan leik út frá mörgum breytum en ég ætla á Þór(jafntefli ekki með) á 2.33.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) October 24, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin
Þorri Ingólfs fær traustið áfram eftir að hafa spilað vel gegn Stjörnunni.
Fyrir leik
Leikurinn færður
Leikurinn í dag átti að vera í Kaplakrika, en hann hefur verið færður á Pepsi Völlinn, heimavöll Þróttara.
Fyrir leik
Umferðin verður gerð upp í sérstökum lokaþætti Innkastsins sem verður í beinni á X977 klukkan 18:00. Þátturinn kemur síðan inn á hlaðvarpsveitur í kjölfarið.
Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (Akraneshöllin)
16:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Innkastið í beinni á X977 klukkan 18

Umferðin verður gerð upp í sérstökum lokaþætti Innkastsins sem verður í beinni á X977 klukkan 18:00. Þátturinn kemur síðan inn á hlaðvarpsveitur í kjölfarið.
Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (Akraneshöllin)
16:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Fyrir leik
Þriðja liðið
Helgi Mikael Jónasson er með flautuna. Ragnar Þór Bender og Jovan Subic verða með flöggin. Jóhann Ingi Jónsson er með skiltið.


Fyrir leik
Allt undir hjá Þór
Þór þarf sigur í dag til að tryggja sér sæti í deild þeirra bestu og senda erkifjendurna í KA niður í Lengjudeildina. Ef Þór nær ekki að sigra þurfa þeir að treysta á að Linti og félagar hans í ÍBV geri þeim greiða og vinni fyrir norðan.
Þór situr í 10. sæti með 27 stig og KA er í 11. sæti með 26 stig. Þessi botnbaráttuslagur er tæpur en Þór getur líklega ekki treyst á markatölu þar sem þeir eru með verstu markatöluna í sumar eða -31. En við höfum öll séð það ótrúlega, en ég trúi því nú ekki að Siggi ætli að tapa svona stórt í dag.


Þór situr í 10. sæti með 27 stig og KA er í 11. sæti með 26 stig. Þessi botnbaráttuslagur er tæpur en Þór getur líklega ekki treyst á markatölu þar sem þeir eru með verstu markatöluna í sumar eða -31. En við höfum öll séð það ótrúlega, en ég trúi því nú ekki að Siggi ætli að tapa svona stórt í dag.


Fyrir leik
Heimaliðið FH
Eftir 26 leiki þá er FH í 9. sætinu með 30 stig, 7 sigrar, 9 jafntefli og 10 töp. FH getur ekki fallið né unnið forsetabikarinn, þessi leikur skiptir kannski engu máli en ég trúi því að heimamenn vilji enda tímabilið sterkt. Þetta er fyrsta tímabilið hjá þjálfaranum Jóa Kalla sem tók yfir liðið síðasta vetur.

Kjartan Kári hefur átt frábært tímabil með FH og verið einn af lykilmönnum liðsins. Hann hefur skorað 8 mörk og lagt upp 11 til viðbótar. Má segja að hann sé afar mikilvægur fyrir heimamenn. Það voru sögur um það að Víkingur vildi fá hann í sumar en hann ákvað að vera áfram í Hafnafirðinum. Kjartan hefur spilað 3 leiki í neðri hlutanum og skorað 3 mörk.


Kjartan Kári hefur átt frábært tímabil með FH og verið einn af lykilmönnum liðsins. Hann hefur skorað 8 mörk og lagt upp 11 til viðbótar. Má segja að hann sé afar mikilvægur fyrir heimamenn. Það voru sögur um það að Víkingur vildi fá hann í sumar en hann ákvað að vera áfram í Hafnafirðinum. Kjartan hefur spilað 3 leiki í neðri hlutanum og skorað 3 mörk.

Fyrir leik
Kaplakriki heilsar
Heil og sæl kæru lesendur, verið velkomin á þessa lýsingu milli FH og Þór. Þetta er síðasta umferðin í Bestu Deild karla og eru allir leikirnir spilaðir á sama tíma. Fotbolti.net er á öllum leikjunum eins og alltaf.

Umferðin í dag
14:00 KR-Breiðablik
14:00 ÍA-Keflavík
14:00 Stjarnan-Valur
14:00 FH-Þór
14:00 KA-ÍBV
16:15 Víkingur R.-Fram

Umferðin í dag
14:00 KR-Breiðablik
14:00 ÍA-Keflavík
14:00 Stjarnan-Valur
14:00 FH-Þór
14:00 KA-ÍBV
16:15 Víkingur R.-Fram












