Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
Bragi Karl: Var ekki í hlutverkinu sem ég vildi vera í
Ingi Þór: Engir grínleikmenn að spila í minni stöðu hjá ÍA
„Fór í viðræður við fullt af klúbbum"
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Þriðji hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Annar hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Fyrsti hluti
Fékk Skagaelítuna á bakið - „Eflaust brotið einhver hjörtu hefði ég ekki komið“
Tekur við eftir að leikmenn neituðu að spila fyrir félagið
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
banner
   fim 05. febrúar 2026 15:45
Elvar Geir Magnússon
Viðtal
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Böddi löpp er mættur í treyju ÍA.
Böddi löpp er mættur í treyju ÍA.
Mynd: ÍA
Í leik með FH á síðasta tímabili.
Í leik með FH á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nálgunarbann? Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri og Böðvar Böðvarsson.
Nálgunarbann? Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri og Böðvar Böðvarsson.
Mynd: ÍA
Böddi með fyrirliðabandið hjá FH.
Böddi með fyrirliðabandið hjá FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skagamenn lögðu mikla áherslu á að fá hann.
Skagamenn lögðu mikla áherslu á að fá hann.
Mynd: ÍA
Hefur aldrei verið hræddur við samkeppni.
Hefur aldrei verið hræddur við samkeppni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í gær var Böðvar Böðvarsson kynntur sem nýr leikmaður ÍA eftir óvænta atburðarás þar sem honum var tilkynnt að hans væri ekki þörf hjá FH, hans uppeldisfélagi.

Böddi kíkti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi um skiptin en óhætt er að segja að þau hafi skapað japl, jaml og fuður í Hafnarfirðinum. Böddi segir að viðskilnaðurinn við FH hafi alls ekki verið eins og hann hafði hugsað sér.

„Það opnast alltaf aðrar dyr og þær galopnuðust upp á Skaga. Ég er mjög þakklátur fyrir að vera kominn þangað," segir Böddi. Er hann að fara í illu úr Hafnarfirðinum?

„Nei ég myndi nú ekki segja það. Ég fór og kvaddi Davíð og Vidda (Davíð Þór Viðarsson yfirmann fótboltamála og Viðar Halldórsson formann) upp í Krika í gær. Ég á eftir að kveðja strákana en býst við að gera það á mánudaginn."

Ósammála flestu sem hann sagði
Davíð ræddi við Fótbolta.net um skiptin í viðtali sem birtist í gær.

   04.02.2026 13:20
Útskýrir af hverju Böddi er að yfirgefa FH - „Eðlilega var hann ekki sáttur við það"


„Ég las þetta viðtal við Davíð fyrir framan hann í gær og var ósammála svona flestu sem hann sagði. En nei nei við förum ekkert í illu, vinir eru alltaf vinir," segir Böddi.

Jóhannes Karl Guðjónsson tók við FH eftir síðasta tímabil. Hvernig var þessi atburðarás þar sem Böddi fær að vita að hans sé ekki lengur þörf hjá FH?

„Ég fer bara á fund með Jóa þar sem hann er gífurlega hreinskilinn. Í kjölfarið fer ég á fund með Davíð þar sem sama hreinskilni er til staðar. Þá förum við bara á fullt að kanna hvaða aðrir möguleikar eru í stöðunni."

Böddi hefur talað um að það sé augljóst að Jói Kalli sé óhræddur við að taka risastórar ákvarðanir.

„Já hann er það. Ég er alveg hreinskilinn með að ég ber mikla virðingu fyrir Jóa Kalla. Hann átti stórkostlegan feril sem leikmaður og hefur mikið verið viðloðinn þjálfun síðustu ár. Hann væri ekki að taka þessa ákvörðun nema hann teldi að það væri þörf á henni. Er ég ósammála henni? Já. En hann tekur hana bara með klúbbinn að leiðarljósi. Hún er ekki tekin í neinu illu heldur bara að koma FH á næsta stig og halda í einhverja stefnu. Maður hefur upplifað verri hluti en þetta í fótbolta."

Töluvert meiri líkur á árangri hjá ÍA
Hugur Bödda hafði verið að klára ferilinn hjá sínu félagi í Hafnarfirðinum.

„Ég hef ekkert farið í grafgötur með að það var alltaf markmiðið að gera það. En þó ég sé með einhver einstaklingsmarkmið þá þarf klúbburinn ekkert að vera að pæla í því. Eins og staðan er núna þá eru töluvert meiri líkur á að ná árangri á Íslandsmótinu með ÍA en FH, eins og staðan er akkúrat núna. Það er önnur vegferð í gangi þar og eins og ég segi, þegar einar dyr lokast opnar aðrar."

   27.01.2026 22:44
„Sem FH-ingur þá skammast ég mín"


Eðlilegt að maður verði pirraður
Þegar fréttir bárust af því að FH væri tilbúið að láta Bödda fara komu mikil viðbrögð frá stuðningsmönnum og fótboltaáhugafólki enda er hann í gríðarlega miklum metum í Firðinum.

„Ég bjóst alveg við viðbrögðum, að það yrðu viðbrögð og ég myndi fá einhvern stuðning. Ég bjóst samt ekki við því að hann yrði eins mikill og hann var. Ég var í símanum nánast í heila viku, frá 8 á morgnana til 11 á kvöldin; hvort sem ég var að svara skilaboðum eða símtölum. Ég fékk gífurlegan stuðning og er þakklátur fyrir það. Það gerir það að verkum að viðskilnaðurinn við FH verði aðeins sætari fyrir vikið."

Böddi sagðist hafa verið mjög pirraður í fyrstu.

„Já ég var það. Ég get alveg verið hreinskilinn með það. Ég held að það væri líka bara skrítið ef maður væri það ekki. Það eru miklar tilfinningar gagnvart sínu félagi og þegar lífsmynd manns, sem maður er búinn að setja upp, fær smá högg þá er eðlilegt að maður verði pirraður."

   04.02.2026 13:43
Böddi gerir tveggja ára samning við ÍA (Staðfest)


Lá við að ég bæði um nálgunarbann
Böddi fór í viðræður við Val ásamt ÍA áður en hann valdi þá gulu. Hver er ástæðan fyrir því að hann velur ÍA?

„Ég fór á fund með tveimur liðum og annað þeirra var ÍA. Sá fundur var mjög góður. Ég ætlaði mér að taka smá tíma í að taka þessa ákvörðun en var ekki í tilfinningalegu jafnvægi fyrstu dagana til að pæla í þessu. Ég var með dóttur minni þarna um helgina og bað um að fá smá tíma, ÍA var ekki tilbúið að gefa mér hann. Þeir settu mjög mikla pressu," segir Böddi.

Hann segir að þar hafi Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri farið fremstur í flokki.

„Það lá við að ég bæði um nálgunarbann um tíma á Ingimar minn," segir Böddi kíminn. „Ingimar þarf að fá launahækkun eða konan hans einhverja orðu, hann var að heyra í mér ellefu á laugardagskvöldi. Hann á skilið klapp á bakið."

„Ég fann fyrir gífurlega miklum áhuga. Það var góður sölupunktur fyrir mig að finna það. Svo þekki ég til manna þarna; þekki Viktor Jóns vel, þekki Gumma Tóta aðeins og Gísla. Þetta verkefni sem þeir eru að fara í selur sig svolítið sjálft og ég fékk góðar móttökur uppi á Skaga."

Böddi segir ljóst að ef ÍA heldur sama dampi og liðið gerði seinni hlutann í fyrra þá séu góðir tímar framundan. Hann gerði tveggja ára samning og ætlar sér að spila Evrópuleiki með Skaganum á næsta ári.

„Já 100%. Ég er kannski ekki bestur í að tjá sig um markmiðasetningu liða en ég held að það sé augljóst að ÍA vill berjast á toppnum í ár og í náinni framtíð."

Það verður væntanlega sérstök tilfinning fyrir Bödda að koma í gula búningnum í Kaplakrikann en það verður í níundu umferð.

„Það er langt í það og ég hef ekkert pælt í því. En það verður örugglega steikt tilfinning í aðdraganda leiksins. Þegar það eru tíu mínútur búnar þá verður það dautt og eins og hver annar leikur."

Ekki hræddur við samkeppni
Hvernig lýst honum annars á deildina í heild sinni, það eru mörg félög sem ætla sér stóra hluti.

„Það eru mörg lið búin að styrkja sig, það eru mörg góð og vel spilandi lið. Ætli það séu ekki 8-9 lið að berjast um einhver fjögur sæti. Það getur brugðið til beggja vona hjá mörgum liðum. Deildin er að verða mjög sterk. Það eru mörg góð lið og svo eru nýliðar sem geta verið hættulegir."

ÍA hefur verið öflugt á markaðnum og Böddi segist gera sér grein fyrir því að hann sé að koma í mikla samkeppni.

„Samkeppnin er kannski helst í þeirri stöðu sem ég vill helst spila; vinstri bakverði. Ég spila bara þar sem mér er sagt að spila. Mér er alveg sama hvar ég spila," segir Böddi.

„Í viðtalinu við minn fyrrum yfirmann var sagt að þessi ákvörðun (að losa hann frá FH) hafi verið tekin því ég hafi átt von á því að vera í minna hlutverki. Ég hef aldrei verið hræddur við samkeppni. Ég veit að í því lengri tíma sem ég er í samkeppni því betri áhrif hefur það á mig og liðið. Ég er að fara í gífurlega samkeppni uppi á Skaga. Mitt markmið er að spila hverja einustu mínútu og æfa þannig og spila að ekki sé hægt að líta framhjá mér."

Hann segir því ekki rétt að stóra ástæðan fyrir viðskilnaði sínum við FH hafi verið sú að hann hafi ekki verið tilbúinn að fara í minna hlutverk.

„Nei það er ekki ástæðan. Það var bara ekki not fyrir mig innan félagsins og þannig gengur það og gerist hjá öllum félögum. Þetta er komið í baksýnisspegilinn. Margir af mínum bestu vinum eru í FH og ég átti gífurlega gott samband við alla í klefanum þar. Geggjaður hópur og ég einlægt óska þeim alls hins besta á komandi tímabili," segir Böddi að lokum.

   04.02.2026 22:40
Lárus Orri: Annað hvort vill enginn koma til þín eða allir

Athugasemdir
banner
banner