Fotbolti.net
05.11.26 - 15:58
Elvar Geir Magnússon

Grealish ekki enn laus úr skammarkróknum

Jack Grealish.

Jack Grealish.

Canon

Mynd: EPA

Jack Grealish er enn í agabanni og verður ekki með Everton gegn Coventry í ensku úrvalsdeildinni á morgun. David Moyes, stjóri Everton, hefur staðfest þetta.

Grealish hefur verið í skammarkróknum síðustu tvo leiki sem báðir voru gegn Newcastle, fyrst í deildabikarnum í síðustu viku og svo í deildinni á mánudaginn.

Ástæðan er sú að hann fór á tveggja daga fyllerí og mætti ekki á æfingu. Grealish. sem er 31 árs, er þekktur grallaraspói og hefur oft komist á síður blaðanna fyrir drykkju og djamm.
Moyes: Grealish getur snúið aftur
TENGT EFNI

Moyes: Grealish getur snúið aftur

Eftir sigur Everton á St James' Park á mánudag sagði Moyes að Grealish ætti enn framtíð hjá félaginu en sagðist ekki vita hvenær hann myndi snúa aftur í leikmannahópinn.

Grealish er á láni frá Manchester City eftir að hafa fallið aftarlega í goggunarröðina þar, þrátt fyrir að hafa kostað félagið 100 milljónir punda árið 2021. Hann skoraði tvö mörk í 22 leikjum fyrir Everton á láni á síðasta tímabili áður en þeirri lánsdvöl lauk vegna meiðsla hans. Hann hefur spilað sex leiki á þessu tímabili.
Grealis á Múlukeppni.

Grealis á Múlukeppni.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.