02.11.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Grealish djammaði tvo daga í röð


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Það bárust fréttir af því í síðustu viku að Everton hafi sett Jack Grealish í agabann fyrir leik liðsins gegn Newcastle í deildabikarnum.
Hann er þekktur fyrir að hafa mjög gaman að lífinu og hefur oft komist í fréttirnar fyrir djamm og drykkju.
Hann er þekktur fyrir að hafa mjög gaman að lífinu og hefur oft komist í fréttirnar fyrir djamm og drykkju.
The Sun segir frá því að hann hafi djammað tvo daga í röð og þess vegna verið settur í agabann. Þar kemur fram að hann hafi farið á Karíókí bar á mánudagsnóttina og farið síðan með félögunum á pöbbarölt kvöldið eftir.
Grealish, sem er 31 árs , er á láni hjá Everton frá Manchester City. Everton heimsækir Newcastle í úrvalsdeildinni í kvöld og það er óvíst hvort Grealish verður með.
Grealish, sem er 31 árs , er á láni hjá Everton frá Manchester City. Everton heimsækir Newcastle í úrvalsdeildinni í kvöld og það er óvíst hvort Grealish verður með.
