Fotbolti.net
06.11.26 - 13:38
Elvar Geir Magnússon

Hægt að setja spurningamerki við að hann fái eitt stærsta starf Íslands á þessum tímapunkti

Jökull Elísabetarson hefur verið ráðinn til Breiðabliks.

Jökull Elísabetarson hefur verið ráðinn til Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jökull Elísabetarson var í dag kynntur sem nýr þjálfari Breiðabliks. Valur Gunnarsson, sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deildinni, segir nokkuð ljóst að gott orðspor Jökuls í Kópavoginum færi honum starfið því illa gekk hjá Stjörnunni.

„Blikastarfið er eitt stærsta starf sem þú færð á Íslandi og ef við skoðum árangur hans með Stjörnunni, sérstaklega á síðasta tímabili þar sem hann er látinn fara, og hvernig þetta var á niðurleið þá getur maður alveg sett spurningamerki við að hann fái strax sitt stærsta starf á Íslandi eftir það," segir Valur.
Jökull tekinn við Breiðabliki (Staðfest)
TENGT EFNI

Jökull tekinn við Breiðabliki (Staðfest)

„Ég hugsa að þessi Augnablikstími hjálpi honum klárlega þarna og menn þekkja hann af góðu einu væntanlega í Kópavoginum. Það er eina útskýringin sem að ég fæ út að hann sé ráðinn þangað."

Tvö stærstu verkefni Jökuls
Jökull talar um það í viðtali að hann ætli sér að kveikja bál og vilji fá orku og ákefð í leikstílinn. Valur segir ljóst að eitt stærsta verkefni hans sé að auka skemmtanagildið?

„Ég tel að tvö stærstu verkefnin hans séu að fara aftur í Blikaboltann og spila skemmtilegri bolta en þeir gerðu í sumar en líka að fá ákveðna endurnýjun í liðið. Þetta lið er bara orðið gamalt og það kannski tengist því að spilamennskan var ekki skemmtileg."

„Þetta eru svona tvö stærstu verkefnin hans; endurnýja liðið að einhverju leyti og spila skemmtilegri bolta. Einnig að fá Blikastuðningsmenn á band með liðinu."

Þarf að læra af mistökunum
Þá segir Valur nauðsynlegt að Jökull læri af mistökunum sem hann gerði í Garðabæ. Mikil umræða hefur til dæmis verið um að lið hans hafi ekki verið í standi og hversu náinn hann var leikmönnum.

„Jú klárlega. Hann er væntanlega með styrktarþjálfara til að hjálpa sér í því og hann verður að halda rétt á spilunum, auðvitað þarf liðið að vera í standi. Það er alveg ljóst að leikmenn elska hann greinilega og það varð uppi fótur og fit eftir að hann kvaddi liðið í sumar hjá Stjörnunni. Það er bara þannig að þú getur verið of nálægt leikmönnum og þetta var orðin mjög skrítin stemning hjá Stjörnunni í lokin. þeir voru ekki að gera rassgat inni á vellinum en voru samt allir reiðir og sorgmæddir þegar hann fór. Þetta var mjög skrítið og ég er á því að það þurfi að vera smá bil á milli leikmanna og þjálfara þegar að kemur að þessu."

Eru völd leikmanna í íslenskum fótbolta mögulega of mikil almennt?

„Ég er ekki alveg viss. Ég held að það sé bara beggja blands. Ég efast um að einhver leikmaður í KR geti sagt eitthvað við Óskar Hrafn til að hann breyti einhverju en svo er það kannski öðruvísi hjá öðrum liðum. Leikmenn virðast allavega nær því að hafa völd hjá Breiðalbiki en mörgum öðrum liðum," segir Valur Gunnarsson.
Valur Gunnarsson.

Valur Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull Elísabetarson.

Jökull Elísabetarson.

Canon

Mynd: Breiðablik

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.