06.11.26 - 12:18
Elvar Geir Magnússon
Útlit fyrir að Aron Baldvin taki við í Árbænum

Aron Baldvin Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tekur Davíð Smári við Gróttu?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Baldvin Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net stefnir í að Aron Baldvin Þórðarson hætti sem aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Víkings og taki við Lengjudeildarliði Fylkis.
Aron Baldvin er 31 árs og er uppalinn Fylkismaður. Hann var sterklega orðaður við ÍBV fyrir ári síðan. Árbæingar eiga eftir að ná samkomulagi við Víking um að fá hann.

TENGT EFNI
Ljóst að Ólafur Ingi tekur ekki við Fylki
Greint var frá því í gær að ljóst væri að Ólafur Ingi Skúlason yrði ekki næsti þjálfari Fylkis en hann var talinn efstur á blaði. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafnaði Ólafur tækifærinu að taka við.
Í síðasta mánuði var Aron Baldvin fyrst orðaður við þjálfarastarfið hjá Fylki en Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Davíð Smári Lamude hafa einnig verið nefndir auk Ólafs.
Aron Baldvin sagði í viðtali við Fótbolta.net í september að það kitlaði að taka að sér að sér aðalþjálfarastarf.
„Ég viðurkenni það alveg að það er byrjað að kitla ansi mikið að fá að vera sinn eigin herra og stýra skútunni einhvers staðar. Mér finnst ég vera mjög tilbúinn í það núna, hef fengið mikið traust frá Sölva og er gríðarlega þakklátur fyrir það. Ég hef fengið risa ábyrgð, fengið að sjá um taktík liðsins að stóru leyti og það hjá langbesta liði landsins sem er alls ekki sjálfsagt. Það hefur hjálpað mér mikið og mig langar að fara búa til mitt eigið verkefni á einhverjum góðum stað. En ef enginn sækist eftir mér þá er ég ánægður í Víkingi, þetta er góður staður til að vera á. Ég er ekki örvæntingarfullur, en ef tækifærið býðst þá er ég klárlega tilbúinn," sagði Aron Baldvin.
Fylkir fór í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á liðnu tímabili, þar sem liðið tapaði gegn Þrótti og verður því áfram í Lengjudeildinni á næsta ári. Heimir Guðjónsson lét af störfum sem þjálfari Fylkis og tók við ÍA.
Nokkur félög í Lengjudeildinni eiga eftir að ganga frá sínum þjálfaramáum fyrir næsta tímabil. Þar á meðal er Grótta en Davíð Smári fundaði með félaginu á dögunum og er talið líklegt að hann taki við.