Fotbolti.net
31.10.26 - 13:18
Brynjar Ingi Erluson

Davíð Smári á leið á fund hjá Gróttu

Davíð Smári Lamude

Davíð Smári Lamude

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin
Davíð Smári Lamude mun funda með Gróttu á næstu dögum, en frá þessu var greint í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag.
Hvað gerir Davíð Smári?
TENGT EFNI

Hvað gerir Davíð Smári?

Davíð hætti með Njarðvík eftir tímabilið, en hann og félagið voru ekki á sömu blaðsíðu þegar kom að hugmyndafræði og var því ákveðið að slíta samstarfinu.

Hann hafði áður náð frábærum árangri með Kórdrengjum og Vestra. Davíð tók við Kórdrengjum í neðstu deild og kom liðinu alla leið upp í Lengjudeildina, en hann yfirgaf félagið eftir tímabilið 2022 og tók við Vestra.

Hann gerði Vestra að bikarmeisturum á síðasta ári og tók í kjölfarið við Njarðvík, þar sem hann stýrði liðinu í eitt tímabil. Nú er hann hins vegar laus allra mála.

Í útvarpsþættinum í dag var greint frá því að Davíð væri á leið á fund hjá Gróttu, sem er án þjálfara eftir að Rúnar Páll Sigmundsson yfirgaf félagið og tók við Stjörnunni.

Haukur Páll Sigurðsson, fyrrum aðstoðarþjálfari Vals, og Borja Martin, fyrrum þjálfari Völsungs, hafa einnig verið orðaðir við þjálfarastöðuna hjá Gróttu.

„Davíð Smári Lamude er á leið á fund á Seltjarnarnesi. Annar sem er orðaður við Gróttustarfið og einnig sagður á lista hjá Njarðvík er Haukur Páll sem vill koma sér aftur inn í bransann, sem hann sagði í Innkastinu í lok tímabils. Hann er á blaði hjá Gróttu og Njarðvík,“ sagði Elvar Geir Magnússon í útvarpsþættinum í dag.

Hann fór með Njarðvík í umspil Lengjudeildarinnar í ár á meðan Grótta hafnaði í 8. sæti.

Davíð hefur einnig verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Fylki, sem er sömuleiðis í þjálfaraleit eftir brottför Heimis Guðjónssonar.
Haukur Páll er einnig orðaður við Gróttu

Haukur Páll er einnig orðaður við Gróttu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.