Fotbolti.net
07.11.26 - 14:18
Brynjar Ingi Erluson

Útskýra hvers vegna ekki var gefið rautt spjald

Jayden Bogle var stálheppinn að fá ekki rautt spjald

Jayden Bogle var stálheppinn að fá ekki rautt spjald

Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildin hefur útskýrt hvers vegna VAR ákvað að grípa ekki inn í eftir grófa tæklingu Jayden Bogle, leikmanns Leeds, gegn Tottenham á Elland Road og hvers vegna hann slapp við rautt spjald.
Mjög umdeild ákvörðun í Leeds - „Þetta er klárt rautt!“
TENGT EFNI

Mjög umdeild ákvörðun í Leeds - „Þetta er klárt rautt!“

Bogle fór í grófa tæklingu aftan á ökkla Mathys Tel í fyrri hálfleiknum. Frakkinn engdist um af sársauka eftir tæklinguna og þurfti að yfirgefa völlinn skömmu síðar.

Tæklingin leit afar illa út og tók það VAR-herbergið töluverðan tíma að fara yfir atvikið og meta hvort Bogle ætti að fá rautt spjald.

Niðurstaðan var sú að Bogle slapp alfarið við spjald og leikurinn hélt áfram. Enska úrvalsdeildin hefur nú útskýrt hvers vegna ekki var gripið inn í.

„Ég staðfesti ákvörðunina á vellinum um að gefa ekki rautt spjald. Það er ekki nægur hraði í tæklingunni og hann stígur á mótherjann. Við metum þetta sem gáleysislega tæklingu,“ sagði í útskýringu VAR á atvikinu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.