Fotbolti.net
04.11.26 - 13:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Draumur Arnars að Orri og Andri fari í úrvalsdeildina - „Vonandi báðir í United"

Andri Lucas og Orri Steinn

Andri Lucas og Orri Steinn

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Andri Lucas Guðjohnsen hefur leikið frábærlega að undanförnu, er funheitur og næstmarkahæstur í ensku Championship-deildinni á tímabilinu.

Hann skoraði eina mark Blackburn gegn Stoke í gær og var rændur öðru marki þar sem dómarinn taldi Andra hafa brotið af sér.

Andri er í landsliðshópnum fyrir komandi leiki gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni. Andri skoraði tvö mörk í síðasta landsliðsverkefni. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, var spurður út í Andra.
„Það var mjög ánægjulegt hversu margir strákar komu úr síðasta landsleikjaglugga og voru heilir. Við sáum alls konar vesen út í heimi að menn væru að meiðast, en það voru ekki ein vöðvameiðsli (hjá okkar strákum). Það sýnir að við vorum að rótera rétt í þessum glugga. Við höfum fengið Orra (Stein Óskarsson) sjóðandi heita, hann kom ekkert með blússandi sjálfstraust inn í síðasta glugga. Ég lít alltaf á að (félags)liðin og landsliðin séu saman í verkefni að gera leikmanninn betri. Í þessum glugga voru fullt af leikmönnum sem komu til baka (til félagsliðanna) og voru sterkir, Mikael (Egill Ellertsson) skoraði með Genoa, Ísak (Bergmann Jóhannesson) átti stórleiki og byrjaði hvern einasta leik fyrir Köln o.s.frv."

„Ég var með þá drauma og von að við sjáum báða senterana okkar (Orra og Andra), ætla ekki að setja pressu á þá, í ensku úrvalsdeildina fyrr en varir. Og vonandi báðir fyrir mitt lið, (Manchester) United. Ekki veitir af,"
sagði Arnar á fundinum.

Orri Steinn hefur skorað þrjú mörk fyrir Sociedad eftir að hafa skorað þrjú mörk í síðasta landsleikjaglugga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.