Fotbolti.net
11.11.26 - 14:14
Kári Snorrason

Útskýrir hvers vegna hann gaf ekki kost á sér - „Ekkert eðlilega erfitt að horfa á þá spila“

Auglýsing
Gaf ekki kost á sér í síðasta verkefni.

Gaf ekki kost á sér í síðasta verkefni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
U21 landsliðið mætir Grikklandi í hádeginu á morgun í fyrri viðureign liðanna í umspili upp á að komast á EM í Albaníu og Serbíu á næsta ári.

Fótbolti.net gerði sér leið á æfingu liðsins í morgunsárið og ræddi við Ágúst Orra Þorsteinsson, leikmann Excelsior í Hollandi. Ágúst gaf ekki kost á sér í síðasta landsliðsverkefni og var hann spurður hvers vegna.
Ágúst Orri gaf ekki kost á sér
TENGT EFNI

Ágúst Orri gaf ekki kost á sér

Lestu um leikinn: Ísland U21 0 - 0 Grikkland U21
„Ég var bara tiltölulega nýmættur í Excelsior og ég taldi það bara ekki vera gott einhvern veginn að fara strax í þriggja vikna prósess með landsliðinu.

Ég var nýkominn inn í hlutina þannig að þetta var ekki það góð tímasetning fyrir mig. Ég var í byrjunarliðinu í fyrstu þremur, fjórum leikjunum og það var mikið álag. Þannig að mér fannst bara mjög fínt að taka mér frí þennan glugga og mættur hérna núna helvíti ferskur,“
segir Ágúst.

Hvernig var samtalið við KSÍ, var þér sýndur mikill skilningur?
„Já, ég heyrði í hérna Lúlla og hann sagði bara ekki málið vinur og þeir skildu mig mjög vel. Þetta var ekkert eðlilega fagmannlega gert hjá þeim.“

Hvernig var að horfa á liðið í fjarska í síðasta glugga?
„Það var ekkert eðlilega erfitt, ég ætla ekki að ljúga því. Það var helvíti erfitt að horfa á strákana. Ég horfði auðvitað á alla leikina og mætti á móti Frökkum.

Helvíti þreytt að vera uppi í stúku eitthvað að horfa á strákana spila á móti Frakklandi og spila svona vel. Já, það var alveg svekkjandi en ég er ógeðslega glaður að þeir hafa klárað þetta og spiluðu ekkert eðlilega vel,“
segir Ágúst að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Hefur spilað 10 leiki fyrir U21 liðið.

Hefur spilað 10 leiki fyrir U21 liðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.