16.09.26 - 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ágúst Orri gaf ekki kost á sér

Mynd: Excelsior

Mynd: Excelsior

Það vekur athygli að Ágúst Orri Þorsteinsson, sem í síðasta mánuði var seldur frá Breiðabliki til Excelsior í hollensku úrvalsdeildinni, er ekki í U21 landsliðshópnum.
Það er vegna þess að hann gaf ekki kost á sér í komandi leiki liðsins.
Ágúst, sem er 21 árs kantmaður, var lykilmaður í liði Breiðabliks sem spilaði fram í desember í fyrra og var það svo áfram fram í ágúst á þessu tímabili.

TENGT EFNI
U21 landsliðshópurinn - Mjög öflugir sóknarmenn
Eftir að hann var svo fenginn til Excelsior fór hann beint í byrjunarliðið og er í stóru hlutverki í liðinu.
Hann hefur byrjað fyrstu fjóra leikina með Excelsior og lagði upp mark í síðasta leik. Langt er eftir af tímabilinu í Hollandi, því lýkur ekki fyrr en í maí, og Ágúst getur nýtt sér næstu vikur í að ná andanum.
U21 á leiki fyrir höndum gegn Frökkum, Sviss og Færeyjum í undankeppni EM.