„Alltaf gaman að vinna, óþarfi að fara með þetta í 120 mínútur. KF barðist vel á meðan við vorum ekki alveg með okkar leik á hreinu," sagði Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Magna, eftir sigur á KF í Mjólkurbikarnum í dag.
Framlengja þurfti leikinn og áfram var jafnt eftir framlenginguna og því var gripið til vítaspyrnukeppni. Þar sigruðu gestirnir frá Grenivík 6-7.
Framlengja þurfti leikinn og áfram var jafnt eftir framlenginguna og því var gripið til vítaspyrnukeppni. Þar sigruðu gestirnir frá Grenivík 6-7.
„Þetta var betra í seinni hálfleik og völlurinn bauð heldur ekki upp á svakalega mikið af gæðum, þurr og nýkominn undan vetri. Aðstæður stjórna oft hvernig leikir þróast."
Vantaði marga leikmenn í hópinn hjá Magna í dag?
„Já það vantar þrjá og svo var ég líka að hvíla leikmenn sem eru fyrirfram byrjunarliðsmenn og gaf öðrum tækifæri."
Magni fær HK í heimsókn á Grenivík í næstu umferð. Hvernig líst Svenna á það?
„Það er frábært, æðislegt, gaman að spila á Grenivík."
Magna er spáð 12. sæti í Lengjudeildinni og KF 12. sætinu í 2. deild. Hefur Svenni áhyggjur að það var enginn munur á þessum tveimur liðum í dag?
„Nei, ég hef engar áhyggjur. Það er alltaf skemmtilegt að vera spáð botnsætinu. Þetta er alltaf svona á hverju ári skiluru og það kemur okkur ekkert á óvart, við vitum alveg hvað við getum og hvað við ætlum að gera. Svona er þetta bara, gaman að þessu."
Ætlar Magni að styrkja sig frekar fyrir fyrsta leik í deild?
„Það getur vel verið," sagði Svenni að lokum.
Önnur viðtöl frá Ólafsfirði:
Tómas Veigar: Líst vel á að fá HK á Grenivíkina
Milo: Svona voru allir leikir á sínum tíma
Grétar Áki: Kannski var það rétt, kannski vitlaust
Athugasemdir






















