Fotbolti.net
15.11.26 - 19:52
Elvar Geir Magnússon
- Laugardalsvelli

„Er ekki með bling um hálsinn eða tattú um allan líkamann“

Er Daníel Leó vanmetnasti leikmaður íslenska liðsins?

Er Daníel Leó vanmetnasti leikmaður íslenska liðsins?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Andri Lucas Guðjohnsen, sóknarmaður íslenska landsliðsins, var spurður að því í viðtali við Fótbolta.net hver væri vanmetnasti leikmaður liðsins.

Andri svaraði að það væri varnarmaðurinn Daníel Leó Grétarsson. Á fréttamannafundi í dag var Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari spurður út í hvort hann væri tilbúinn að taka undir það mat?
Dóttir Daníels fór í stóra aðgerð - „Þurfti að fá að vera pabbi og eiginmaður“
TENGT EFNI

Dóttir Daníels fór í stóra aðgerð - „Þurfti að fá að vera pabbi og eiginmaður“

„Já, ég get vel tekið undir það. Ég held að hann sé ekki að keyra um á Mercedes Benz. Hann er ekki með bling um hálsinn eða húðflúr um allan líkamann, ekki að það sé neitt að því, en hann lætur bara verkin tala á vellinum," segir Arnar.

Hann segir að Daníel sýni alltaf mikinn stöðugleika í frammistöðu og standi alltaf fyrir sínyu.

„Hann er grjótharður náungi og mjög. Hann er aldrei með tvist og níur, heldur með níur og svo sjöur. Lélegi leikurinn hans er sjö og það er gulls ígildi, sérstaklega hjá varnarmanni."

Daníel Leó er 31 árs og spilar fyrir AGF í Danmörku. Hann á 36 landsleiki fyrir Ísland og er orðinn algjör lykilmaður í liðinu. Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á morgun á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.
„Er ekki með bling um hálsinn eða tattú um allan líkamann“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Er ekki með bling um hálsinn eða tattú um allan líkamann“
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.