15.11.26 - 17:44
Elvar Geir Magnússon
Þrjú þúsund miðar seldir - „Held að þeir séu ekki peppaðir“

Frá æfingu Íslands á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á morgun á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.
Ómar Smárason fjölmiðlafulltrúi KSÍ greindi frá því á fréttamannafundi í dag að búið sé að selja tæplega 3.000 miða.

TENGT EFNI
Löng nótt hjá starfsmönnum Laugardalsvallar
Ísland æfði á vellinum í dag og var miðjumaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson spurður að því hverng það hafi verið að æfa í kuldanum.
„Það er mjög kalt en við erum vanir þessu. Ég held að Lúxemborgarar séu ekki peppaðir að koma hingað í mínus 5 gráður en við erum allir vanir þessu. Þetta er bara partur af þessu að búa á Íslandi. Völlurinn er bara mjög fínn. Það er hægt að spila á honum. Boltarnir smá þungir og smá frosnir en ég held að það verði flott að leika á morgun og vel hægt að spila á þessum velli," segir Ísak Bergmann.

Mynd: KSÍ