15.11.26 - 18:53
Elvar Geir Magnússon
Kristall fer í myndatöku á morgun - „Verstu fréttirnar væru krossbandaslit“

Kristall Máni Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hjörtur Hermannsson býr sig undir æfingu í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson.

Landsliðsmaðurinn Kristall Máni Ingason verður ekki með gegn Lúxemborg á morgun en hann fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í 5-0 sigrinum gegn Búlgaríu.
Kristall, sem leikur fyrir norska liðið Brann, var sárkvalinn. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var á fréttamannafundi í dag spurður út í stöðuna á honum.
„Við höfum áhyggjur af Kristali náttúrulega, hann fer í myndatöku á morgun. Vonandi sleppur hann við verstu fréttirnar sem væru náttúrulega krossbandaslit. Við leyfum okkur ekki alveg að hugsa bara svo langt, við vonum það besta, segir Arnar.
Auk Kristals meiddist Stefán Teitur Þórðarson einnig í Búlgaríu og þá verður Hörður Björgvin Magnússon í banni á morgun. Hjörtur Hermannsson, Brynjar Ingi Bjarnason og Sævar Atli Magnússon voru kallaðir inn í hópinn í þeirra stað.
„Við fengum góða menn inn í staðinn. Hópurinn er stór og við fáum ferska menn inn."

TENGT EFNI
Kári hefur áhyggjur af Kristali - „Þetta lítur ekki vel út“
Fljótir að læra
Arnar var spurður að því á fundinum hvort einhver af þeim sem kallaðir voru inn gæti byrjað á morgun?
„Já, það kæmi bara alveg til greina. Mér finnst bara allir þessir strákar í hópnum geta startað leikinn. Auðvitað viltu breyta sem minnstu eftir 5-0 sigur gegn Búlgaríu en við erum neyddir til að gera tvær breytingar."
„Þetta verður bara að koma í ljós. Liðið var ákaflega þétt og flott á móti Búlgörum og einhvern veginn gott kemestrí á milli leikmanna. Eins og ég að segi alltaf við strákana þá er það besta við að þjálfa þá hversu fljótir þeir eru að læra. Við vorum ekki nægilega samstilltir í pressunni á móti Eistum og mér líður eins og það sé nóg að sýna eitt myndband og þeir eru búnir að kveikja strax á og breyta því í næsta leik. Það er veisla fyrir þjálfa svona elítuleikmenn.
Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á morgun á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.

Mynd: KSÍ