15.11.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldinho stóð sig vel í sigri

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ronaldinho, sem er 46 ára gamall og hafði ekki spilað keppnisleik í fótbolta í rúman áratug, var í byrjunarliði Ravenna sem tók á móti Forlí í C-deild ítalska boltans í dag.

TENGT EFNI
Ronaldinho í byrjunarliðinu hjá Ravenna
Ronaldinho býr ennþá yfir ótrúlegum gæðum sem fótboltamaður og var einn af bestu leikmönnum vallarins þrátt fyrir að geta ekki sinnt varnarvinnu eða stungið neinn af á sprettinum.
Ronaldinho var snotur á boltanum og átti mjög góðar sendingar. Hann skapaði hættu þegar hann tók hornspyrnur og átti þátt í eina markinu sem var skorað í fyrri hálfleik.
Brasilísku goðsögninni var kippt af velli í leikhlé en markmiðið hans var að skora 300. mark ferilsins. Leikurinn í dag var hugsaður sem eini leikurinn sem Ronaldinho spilar, en eftir þessa frammistöðu þykir líklegt að hann komi aftur við sögu á tímabilinu.
Ronaldinho á lítinn hlut í Ravenna sem hefur aldrei leikið í efstu deild á Ítalíu. Félagið lék síðast í Serie B fyrir tæpum 20 árum.
Ravenna vann leikinn gegn Forlí 2-0 og er í öðru sæti í sínum riðli í C-deildinni, með 32 stig eftir 14 umferðir. Sex stigum á eftir toppliði Spezia og sjö stigum á undan Pescara.