15.11.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tenerife mætti aftur til leiks eftir andlátið

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
CD Tenerife mætti aftur á fótboltavöllinn í dag, tveimur vikum eftir hörmulegt slys sem varð til þess að Jesús de Miguel lét lífið í leik gegn Andorra.

TENGT EFNI
Styðja eins árs gamla dóttur De Miguel fjárhagslega
Tenerife tók á móti Ceuta og vann leikinn 2-0 á tilfinningaþrungnum degi.
Minnst var De Miguel fyrir leik og á meðan á leiknum stóð. Til að mynda var mínútuþögn fyrir leik og var leikurinn svo stöðvaður á níundu mínútu til heiðurs honum þar sem hann klæddist treyju númer 9 hjá félaginu.
Nacho Gil skoraði fyrsta mark leiksins og tileinkaði það De Miguel með skilaboðum undir treyjunni: „Demi alltaf í hjörtum okkar."
Tenerife átti að spila við Granada 7. nóvember en leiknum var frestað vegna andlátsins.