15.11.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vill meiri spiltíma en veit ekki hvað gerist í janúar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarmaðurinn Endrick hefur verið sterklega orðaður við félagaskipti í ensku úrvalsdeildina í janúarglugganum. Hann er samningsbundinn Real Madrid en fær lítið af tækifærum í stjörnum prýddum leikmannahópi.

TENGT EFNI
Útilokar að Endrick fari frá Real Madrid
Real hefur engan áhuga á að selja ungstirnið sitt en gæti verið opið fyrir því að lána Endrick út þar sem þetta er mjög mikilvægur tímapunktur í þroskaferli hans sem leikmaður.
Endrick er 20 ára gamall og er kominn með eitt mark og eina stoðsendingu á tímabilinu. Hann hefur komið við sögu í sjö leikjum það sem af er tímabils og aðeins einu sinni verið í byrjunarliðinu.
„Ég veit ekki hvað gerist í janúar, það er í höndum Guðs. Ég bið bara um að fá að taka skrefið sem mun reynast best fyrir mig og minn feril. Ég vil bara spila, vera hamingjusamur og hjálpa liðsfélögunum," segir Endrick, sem er í brasilíska landsliðshópnum í landsleikjahlénu. Hann á 4 mörk í 25 landsleikjum þrátt fyrir ungan aldur.
„Það sem á að gerast mun gerast. Ég held fótunum á jörðinni og held áfram að gera mitt allra besta. Madríd er æðisleg borg, en ég mun alltaf gera það sem er best fyrir minn feril sem atvinnumaður."
Endrick hefur miklar mætur á José Mourinho þjálfara Real Madrid, enda gengur liðinu vel undir hans stjórn og virðist stemningin vera góð í klefanum.
„Ég ber mikið traust til Mourinho. Hann talar við mig á hverjum einasta degi og ekki til að ræða um fótbolta, heldur til að spyrja um mitt persónulega líf. Ég mun alltaf leggja allt í sölurnar fyrir Real Madrid og væntumþykjan sem Mourinho sýnir mér hvetur mig enn frekar til dáða."

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 12 | +35 | 33 |
| 2 | Real Madrid | 12 | +21 | 30 |
| 3 | Atletico Madrid | 12 | +13 | 28 |
| 4 | Betis | 12 | +5 | 26 |
| 5 | Real Sociedad | 12 | +1 | 22 |
| 6 | Sevilla | 12 | -2 | 18 |
| 7 | Athletic | 11 | +4 | 16 |
| 8 | Villarreal | 12 | +2 | 15 |
| 9 | Deportivo | 12 | +1 | 15 |
| 10 | Racing Santander | 12 | -13 | 14 |
| 11 | Celta | 12 | 0 | 13 |
| 12 | Alaves | 12 | -2 | 13 |
| 13 | Espanyol | 12 | -1 | 12 |
| 14 | Vallecano | 11 | -6 | 12 |
| 15 | Getafe | 12 | -10 | 12 |
| 16 | Osasuna | 12 | -11 | 12 |
| 17 | Levante | 12 | -5 | 11 |
| 18 | Elche | 12 | -6 | 10 |
| 19 | Valencia | 12 | -12 | 9 |
| 20 | Malaga | 12 | -14 | 5 |