| fim 16.apr 2026 16:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 7. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Þór/KA muni enda í sjöunda sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Þór/KA missir af efri hlutanum ef spáin rætist.
Bríet Fjóla Bjarnadóttir er einn mest spennandi leikmaður Bestu deildarinnar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. Þór/KA, 43 stig
8. ÍBV, 34 stig
9. Grindavík/Njarðvík, 21 stig
10. Fram, 17 stig
Um liðið: Þór/KA fer inn í mótið með ákveðna spennu í kringum sig, enda liði spáð 7. sæti þrátt fyrir að margt bendi til þess að þær geti gert meira en það. Félagið hefur verið fastagestur í efstu deild undanfarin ár og byggir á sterkri hefð, en það hefur kannski verið smá þreyta í þessu undanfarin ár. Stærsta breytingin fyrir komandi tímabil er án efa á þjálfarabekknum þar sem nýr og spennandi þjálfari hefur tekið við liðinu, sem gæti haft veruleg áhrif á leikstíl og sjálfstraust hópsins. Þá hefur liðið styrkt sig með tveimur af efnilegustu leikmönnum landsins. Hópurinn er áhugaverð blanda af reynslumiklum og ungum leikmönnum sem gætu sprungið út ef hlutirnir falla rétt með þeim. Sandra María Jessen hefur farið gjörsamlega fyrir Þór/KA síðustu ár en hún fór út til Þýskalands á miðju síðasta sumri og aðrir leikmenn þurfa núna að taka við keflinu. En ekki láta þér bregða þó Þór/KA verði það lið sem fólk er að vanmeta mest fyrir tímabilið.
Þjálfarinn: Aðalsteinn Jóhann Friðriksson tók við Þór/KA í vetur af vini sínum Jóhanni Kristni Gunnarssyni. Aðalsteinn, eða Alli Jói eins og hann er kallaður, hætti með Völsung eftir að hafa náð þar frábærum árangri með bæði karla- og kvennalið félagsins síðustu ár. Alli Jói hefur verið andlit fótboltans á Húsavíkur í dágóðan tíma núna en tekur núna skref út fyrir þægindarammann, og næsta skrefið á spennandi þjálfaraferli. „Það er ótrúlega margt spennandi við Þór/KA. Eftir að Jói kom 2012 þá fór maður aðeins að fylgjast með þessu. Mér finnst ára yfir því hvað leikmenn eru að gera, metnaður í stelpunum og umhverfið spennandi. Það er tækifæri til að gera góða hluti hér," sagði Alli Jói þegar hann tók við starfinu á Akureyri.
Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ferskur blær yfir nýjum straumum
„Alli Jói mættur í höfuðborg norðursins og ferskir straumar fylgja með. Eftir mögur ár finnst mér vera blikur á lofti um að Þór/ KA geti farið að ná fyrri hæðum."
„Reynslumiklir leikmenn í bland við ungar og efnilegar er blanda sem gæti gefið gott og svo virðist sem að markaskorari sé fundin í Erin Flurey."
„Þór/KA verða 100% ofar og það verður skemmtilegt að horfa á þær. Heimavöllurinn mun vega þungt og óvænt úrslit í borg óttans mun gera þær gildandi við toppinn þegar haustið gengur í garð."
Lykilmenn: Arna Sif Ásgrímsdóttir og Erin Flurey
Arna Sif kom heim í Þór/KA í vetur og það er risastórt fyrir félagið. Örnu þarf ekki að kynna fyrir Akureyringum en þar er hún fædd og uppalin. Hún steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Þór/KA árið 2007 þar sem hún spilaði 12 leiki og skoraði 2 mörk. Hún var þá fyrirliði liðsins er það varð Íslandsmeistari árið 2012. Hún hefur verið einn öflugasti varnarmaður Bestu deildarinnar síðustu ár með Val en er núna að koma til baka eftir barnsburð og krossbandsslit. Hún kemur ekki bara með gæði, heldur líka mikinn karakter. Erin Flurey er sóknarmaður frá Auburn-háskólanum í Texas. Hún sýndi frábæra takta í síðasta leik Þórs í Lengjubikarnum þar sem hún skoraði þrennu og það eru miklar vonir bundnar við hana fyrir tímabilið.
Gaman að fylgjast með: Stelpunum af Króknum
Bríet Fjóla Bjarnadóttir er auðvitað leikmaður sem allir verða að fylgjast með í sumar en það er jafnframt gríðarleg eftirvænting fyrir því að sjá Elísu Bríet Björnsdóttur og Birgittu Rún Finnbogadóttur í nýju umhverfi. Þær eru báðar kornungar en hafa spilað stórt hlutverk í liði Tindastóls síðustu ár. Öll félögin í Bestu deildinni vildu fá þær í sínar raðir en þær völdu Akureyri og verður spennandi að sjá þær í liði Þór/KA í sumar.
Komnar:
Arna Sif Ásgrímsdóttir frá Val
Halla Bríet Kristjánsdóttir frá Völsungi
Elísa Bríet Björnsdóttir frá Tindastóli
Birgitta Rún Finnbogadóttir frá Tindastóli
María Dögg Jóhannesdóttir frá Tindastóli
Erin Flurey frá Bandaríkjunum
Allie Augur frá Bandaríkjunum
Farnar:
Sandra María Jessen til Köln
Sonja Björg Sigurðardóttir í Val
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir í Val
Ellie Moreno
Jessica Berlin
Henríetta Ágústsdóttir í HK (var á láni frá Stjörnunni)
Eva Rut Ásþórsdóttir í Fylki
Krista Dís Kristinsdóttir í Fram
Fyrstu fimm leikir Þórs/KA:
25. apríl, Þór/KA - FH (Þórsvöllur)
30. apríl, Grindavík/Njarðvík - Þór/KA (JBÓ völlurinn)
6. maí, Þór/KA - Stjarnan (Þórsvöllur)
10. maí, ÍBV - Þór/KA (Hásteinsvöllur)
20. maí, Þór/KA - Breiðablik (Þórsvöllur)
Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.



