16.11.26 - 19:04
Brynjar Ingi Erluson
Eiður Smári klökkur þegar hann ræddi Aron - „Það er bara kúl að gráta aðeins“

Aron kemur inn á í síðasta landsleik sínum

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eiður Smári Guðjohnsen

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Einar Gunnarsson lék sinn síðasta landsleik fyrir Ísland í kvöld og voru tilfinningarnar skiljanlega miklar.

TENGT EFNI
Aron Einar jafnaði landsleikjametið
Aron byrjaði á varamannabekknum gegn Lúxemborg, en það lá fyrir að þetta yrði hans síðasti leikur með íslenska landsliðinu.
Hann átti möguleika á að jafna landsleikjamet Birkis Bjarnasonar með því að koma við sögu og þegar Ísland var komið í 3-0 forystu ákvað Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, að senda Aron inn á.
Þetta var söguleg stund og til að gera hana enn sérstakari klæddist Aron treyju númer 14, sem var einmitt fyrsta treyjunúmer hans með A-landsliðinu.
Þegar flautað var til leiksloka tók við tilfinningaþrungin kveðjustund. Aron virtist enn vera að átta sig á því að landsliðsferillinn væri á enda, en hann fékk að taka sitt síðasta HÚH með stuðningsmönnunum áður en strákarnir tóku hann á loft og tolleruðu hann.
Eiður Smári Guðjohnsen ræddi þessa fallegu stund í setti SÝN eftir leikinn.
„Það er bara kúl að gráta aðeins. Þetta hellist yfir mann og allt í einu er þessi kafli búinn, en hvað getum við annað sagt. Hann er fyrirliðinn eins og strákarnir komu inn á þegar við förum og gúgglum fyrirliða þá er hann á mynd ásamt stórum og merkum mönnum,“ sagði Eiður klökkur í útsendingunni.