Fotbolti.net
16.11.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Eistar fá öflugan stuðning en þurfa að treysta á óvænt úrslit á Íslandi

Stuðningsmenn Eistlands á Laugardalsvelli.

Stuðningsmenn Eistlands á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Eistland hefur komið á óvart í Þjóðadeildinni og áhuginn í kringum landsliðið hefur aukist mikið hjá þjóðinni. Báðir leikirnir gegn Íslendingum í riðlinum enduðu með jafntefli og Eistar hafa innsiglað annað sætið í riðlinum, sem þýðir að þeir munu leika um sæti í B-deildinni í mars.

Enn er möguleiki fyrir þá að að ná efsta sæti riðilsins, en til þess þurfa þeir að sigra Búlgaríu í dag og treysta á að Lúxemborg vinni mjög óvæntan sigur á Íslandi.

Eistar virðast hafa trú og lið þeirra fær góðan stuðning í Tallinn í dag, reiknað er með um 8 þúsund áhorfendum.
Eistar í skýjunum - Vantaði sjö byrjunarliðsmenn gegn Íslandi
TENGT EFNI

Eistar í skýjunum - Vantaði sjö byrjunarliðsmenn gegn Íslandi

Þjóðadeild karla - C-deild, riðill 4
17:00 Ísland-Lúxemborg (Laugardalsvöllur)
17:00 Eistland-Búlgaría (A. le Coq)



„Eistland er á ótrúlegri siglingu um þessar mundir: í fyrsta sinn í sögunni hefur liðinu tekist að fara ósigrað í gegnum sjö leiki í röð. Í leiknum gegn Búlgaríu gæti annað met fallið; ef Eistland heldur hreinu verður þetta í fyrsta sinn sem árinu lýkur án þess að liðið hafi fengið á sig mark á heimavelli," skrifar Marko Susi, íþróttafréttamaður hjá Postimees.

„Við viljum ljúka Þjóðadeildinni á sama hátt og við höfum spilað hingað til. Við viljum vera lið sem sýnir hungur, sækir af krafti og sýnir mikla ástríðu í varnarleiknum," segir Jurgen Henn, þjálfari Eista.

„Ég hugsa ekkert um stöðuna í riðlinum. Markmið mitt er að við spilum vel sem lið og vinnum leikinn. Við ráðum því ekki hverju það mun skila okkur. Við einbeitum okkur að leiknum og sjáum svo hvernig staðan er á mánudagskvöld," segir fyrirliðinn Karol Mets.

Í lok síðasta glugga gerðu Eistar markalaust jafntefli við okkur Íslendinga. Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, hrósaði landsliði Eistlands.

„Þetta var virkilega erfitt kvöld fyrir okkur. Eistarnir voru beinskeyttir og ég fílaði liðið þeirra. Þeir voru mjög ‘direct’ og voru að valda okkur miklum vandræðum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við náðum engum takti í pressuna okkar og héldum illa í bolta og vorum að gefa óþarfa langar sendingar án þess að vera í neinni stöðu til að vinna seinni bolta," sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir leik Íslands í Tallinn.
Eistar fagna.

Eistar fagna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eistar fá öflugan stuðning en þurfa að treysta á óvænt úrslit á Íslandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eistar fá öflugan stuðning en þurfa að treysta á óvænt úrslit á Íslandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.