Fotbolti.net
16.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - Í góðri stöðu fyrir lokaumferðina

Ísland í dag - Í góðri stöðu fyrir lokaumferðina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Íslenska landsliðið tekur á móti Lúxemborg í lokaumferð í deildakeppni Þjóðadeildarinnar klukkan 17:00 og mun eitt stig að öllum líkindum nægja til að tryggja liðið upp um deild.
Ísland átta sinnum sigurstranglegra gegn bitlausum Lúxemborgurum
TENGT EFNI

Ísland átta sinnum sigurstranglegra gegn bitlausum Lúxemborgurum

Lestu um leikinn: Ísland 0 - 0 Lúxemborg
Ísland hefur rúllað yfir andstæðinga sína í Þjóðadeildinni hingað til, að undanskildum Eistlendingum, og unnu Strákarnir okkar þægilegan þriggja marka sigur í útileiknum gegn Lúxemborg í lok september.

Ljóst er að þó að jafntefli nægi þá ætti þessi leikur að vera flokkaður sem skyldusigur á heimavelli, sérstaklega miðað við formið sem landsliðsmennirnir eru í. Strákarnir gjörsamlega rúlluðu yfir Búlgaríu fyrir helgi og mæta til leiks með sjálfstraustið í botni í dag.

Eistland spilar á sama tíma við Búlgaríu, en Ísland er með tveggja stiga forystu á Eistana og talsvert betri markatölu.

Það er mikilvægt fyrir Ísland að sigra af fleiri ástæðum en bara að tryggja sér upp í B-deild. Með því að vinna riðilinn verðum við í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni EM í byrjun desember og sigur styrkir stöðu okkar þegar kemur að möguleika á bakdyraleið á EM ef við náum ekki sæti í gegnum undankeppnina.

Þjóðadeild karla - C-deild, riðill 4
17:00 Ísland-Lúxemborg (Laugardalsvöllur)
17:00 Eistland-Búlgaría (A. le Coq)

Riðill 4:
1. Ísland 11 stig 12-1
2. Eistland 9 stig 3-1
3. Búlgaría 4 stig 3-10
4. Lúxemborg 3 stig 2-8
Ísland í dag - Í góðri stöðu fyrir lokaumferðina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland í dag - Í góðri stöðu fyrir lokaumferðina
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.