Fotbolti.net
15.11.26 - 20:21
Elvar Geir Magnússon
- Laugardalsvelli

Líklegt byrjunarlið Íslands - Arnar vill breyta sem minnstu

Hjörtur Hjartarson fyrir landsliðsæfingu í dag.

Hjörtur Hjartarson fyrir landsliðsæfingu í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á morgun á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.

Ljóst er að Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari mun gera tvær breytingar að minnsta kosti á byrjunarliðinu frá 5-0 sigrinum gegn Búlgaríu. Stefán Teitur Þórðarson og Kristall Máni Ingason eru meiddir.
Þrjú þúsund miðar seldir - „Held að þeir séu ekki peppaðir“
TENGT EFNI

Þrjú þúsund miðar seldir - „Held að þeir séu ekki peppaðir“


„Mér finnst bara allir þessir strákar í hópnum geta startað leikinn. Auðvitað viltu breyta sem minnstu eftir 5-0 sigur gegn Búlgaríu en við erum neyddir til að gera tvær breytingar," sagði Arnar á fréttamannafundi í dag.

Arnar var virkilega ánægður með Búlgaríuleikinn. Við giskum því á að breytingarnar á byrjunarliðinu verði aðeins tvær.

Aron Einar byrjar á bekknum
Spurning er hver verður í miðverði í stað Stefáns á morgun. Hörður Björgvin Magnússon, sem kom inn fyrir hann í Búlgaríu, verður í leikbanni.

Miðað við ummæli Arnars á fréttamannafundinum í dag er útlit fyrir að Aron Einar Gunnarsson byrji á bekknum í sínu síðasta landsleikjaverkefni. Hjörtur Hermannsson og Brynjar Ingi Bjarnason voru kallaðir inn í hópinn og þá er möguleiki á að nota Guðlaug Victor Pálsson í hjarta varnarinnar.

Fótbolti.net spáir því að Hjörtur komi inn í byrjunarliðið.

Arnór Sigurðsson var valinn framyfir Jón Dag Þorsteinsson þegar Kristall meiddist í Búlgaríu og er Arnór því í líklegu byrjunarliði.

Jafntefli dugar Íslandi til að vinna riðilinn vegna öflugrar markatölu og þá er ljóst að Ísland endar alltaf í efsta sæti ef Eistland vinnur ekki Búlgaríu í leik sem fram fer á sama tíma. Það er mikilvægt fyrir Ísland að sigra á morgun af fleiri ástæðum en bara að tryggja sér upp í B-deild. Með því að vinna riðilinn verðum við í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni EM í byrjun desember og sigur styrkir stöðu okkar þegar kemur að möguleika á bakdyraleið á EM ef við náum ekki sæti í gengnum undankeppnina.
Arnór Sigurðsson.

Arnór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson.

Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: KSÍ

Líklegt byrjunarlið Íslands - Arnar vill breyta sem minnstu
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.