16.11.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Raphinha þreyttur á að spila í gegnum meiðsli

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Raphinha fékk gagnrýni í heimalandinu eftir ummæli þar sem hann sagðist ekki geta spilað allar mínútur í öllum leikjum brasilíska landsliðsins vegna mikils leikjaálags.

TENGT EFNI
Verður að fylgja reglum til að nota Raphinha
Raphinha, sem er einn af bestu sóknarleikmönnum heims um þessar mundir, segist vera orðinn þreyttur á að þurfa sífellt að glíma við meiðsli. Þó að hann spili mjög marga leiki þá er hann sjaldan að spila við fulla heilsu.
„Það var ótrúlega pirrandi að vera meiddur á HM í sumar en ég gef alltaf allt sem ég á í hvern einasta leik, þó að ég sé ekki við fulla heilsu. Læknar og sjúkraþjálfarar eru sífellt að segja við mig að slaka aðeins á og fara varlega, en ég vil ekki breyta leikstílnum mínum. Að lokum er það líkaminn minn sem þarf að gjalda fyrir það," segir Raphinha.
„Ef ég spila allar mínúturnar alltaf þá enda ég bara meiddur. Ég vil ekki vera meiddur, ég vil geta hjálpað Barcelona og brasilíska landsliðinu. Til þess að gera það er mikilvægt að ég fái stundum hvíld. Annars meiðist ég og get hvorki spilað fyrir félagið mitt né þjóð mína.
„Ég elska að spila fyrir Brasilíu, það eru mikil forréttindi og heiður að spila fyrir landsliðið. Ég hef alltaf gert mitt besta til að vera liðtækur fyrir landsleiki."
Raphinha var í byrjunarliðinu í 3-2 tapi gegn Japan í æfingalandsleik á dögunum. Hann lék í rétt rúmar 70 mínútur áður en honum var skipt af velli, en Raphinha fékk svo beint rautt spjald af bekknum í uppbótartíma.
Raphinha og Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari mótmæltu sigurmarki Japana og fengu báðir að líta rauða spjaldið frá dómara leiksins, Raphinha fyrir harkaleg mótmæli og Ancelotti fyrir að hafa ekki stjórn á varamannabekknum. Raphinha verður því í leikbanni þegar Brasilía spilar við Singapúr í fyrramálið og fær verðskuldaða hvíld fyrir komandi átök með Barcelona.
Mögulegt er að brasilíska landsliðið gefi Raphinha leyfi til að fara fyrr til Spánar þar sem hann getur búið sig undir næsta leik Börsunga.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 12 | +35 | 33 |
| 2 | Real Madrid | 12 | +21 | 30 |
| 3 | Atletico Madrid | 12 | +13 | 28 |
| 4 | Betis | 12 | +5 | 26 |
| 5 | Real Sociedad | 12 | +1 | 22 |
| 6 | Sevilla | 12 | -2 | 18 |
| 7 | Athletic | 11 | +4 | 16 |
| 8 | Villarreal | 12 | +2 | 15 |
| 9 | Deportivo | 12 | +1 | 15 |
| 10 | Racing Santander | 12 | -13 | 14 |
| 11 | Celta | 12 | 0 | 13 |
| 12 | Alaves | 12 | -2 | 13 |
| 13 | Espanyol | 12 | -1 | 12 |
| 14 | Vallecano | 11 | -6 | 12 |
| 15 | Getafe | 12 | -10 | 12 |
| 16 | Osasuna | 12 | -11 | 12 |
| 17 | Levante | 12 | -5 | 11 |
| 18 | Elche | 12 | -6 | 10 |
| 19 | Valencia | 12 | -12 | 9 |
| 20 | Malaga | 12 | -14 | 5 |