16.11.26 - 20:25
Brynjar Ingi Erluson
Segir Arnar vera búinn að finna sitt lið - „Munum sjá meira af þessum mönnum“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári segir Arnar hafa fundið sitt lið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Árnason, fyrrum landsliðsmaður Íslands, telur að Arnar Gunnlaugsson sé búinn að finna sitt lið fyrir komandi ár, eða að minnsta kosti hryggjarsúluna í því.

TENGT EFNI
Falleg kveðjustund þegar Ísland tryggði sér toppsætið
Ísland vann sinn riðil sannfærandi með 14 stig, fimmtán mörk skoruð og aðeins eitt mark fengið á sig.
Kári var ánægður með fagmannlega frammistöðu og segir það vera gott að vera komnir upp úr C-deildinni.
„Ég tek undir með Gumma að það er gott að komast upp úr þessari C-deild og við fáum leiki sem henta okkur betur og verða jafnari. Það er skemmtilega að horfa á það á og vinna þá,“ sagði Kári á SÝN.
Hann telur að Arnar hafi fundið liðið sitt og sé kominn með ansi myndarlega hryggjarsúlu.
„Ég held að hann sé búinn að finna sitt lið og við munum sjá meira af þessum mönnum. Hann er með nokkrar stöður sem hann getur breytt en það eru fastir póstar. Það eru Daníel, Hákon Arnar og Ísak, tala ekki um framherjaparið. Þetta eru mennirnir sem hann treystir á og svo getur hann aðeins breytt í kringum það. Þetta er hryggjarsúlan sem er hann er með og með Hákon í markinu.“
Það er nóg til af framherjum en Kári benti einnig á að það séu spennandi leikmenn í U21 árs landsliðinu sem rétt missti af sæti á Evrópumótið í kvöld eftir grátlegt tap gegn Grikkjum í vítakeppni.
„Nei, það virðist vera nóg af þeim þessa dagana og svo erum við með gríðarlega spennandi hafsentapar í U21 og ekki gleyma Hilmi sem skoraði gríðarlega fallegt mark á móti Grikkjum í heimaleiknum. Gríðarlega spennandi tímar.“
Er einhverju ósvarað varðandi framhaldið?
„Ósvarað? Það er erfitt að segja til um það en mér fannst pressan oft á tíðum góð en svo brotnaði hún niður á tímum og við ræddum það í fyrri hálfleik að þetta hefði verið aðeins of auðvelt að komast úr pressu frá okkur. Það eru þannig spurningar sem maður fær ekki alveg svarað því þessi lið eru ekki nægilega góð til að refsa okkur og það er kannski það sem kemur í ljós næst þegar við bætum betri liðum,“ sagði Kári ennfremur.