Fotbolti.net
16.11.26 - 20:36
Brynjar Ingi Erluson

„Sýnt okkur nákvæmlega hvað það þýðir að bera bandið fyrir íslenska landsliðið“

Takk fyrir allt, Aron Einar!

Takk fyrir allt, Aron Einar!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Aron Einar Gunnarsson tók sinn hinsta dans með íslenska landsliðinu í 3-0 sigrinum á Lúxemborg í kvöld. Hann jafnaði um leið landsleikjametið og kveður landsliðið sem ein af stærstu goðsögnum íslensks fótbolta.
Eiður Smári klökkur þegar hann ræddi Aron - „Það er bara kúl að gráta aðeins“
TENGT EFNI

Eiður Smári klökkur þegar hann ræddi Aron - „Það er bara kúl að gráta aðeins“

Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
Aron lék sinn fyrsta landsleik árið 2008, þá í treyju númer 14, og átján árum síðar lokaði hann hringnum þegar hann spilaði sinn 113. og síðasta landsleik í sama treyjunúmeri í kvöld.

Hann leiddi Ísland sem fyrirliði á sitt fyrsta Evrópumót árið 2016 og síðan á fyrsta heimsmeistaramótið tveimur árum síðar.

Kári Árnason var samherji Arons á báðum stórmótunum og fór fallegum orðum um fyrrum liðsfélaga sinn í útsendingu SÝN.

„Hann er æðislegur liðsmaður og leggur allt í þetta. Hann er góður að skipuleggja og góður í sinni stöðu sem djúpur á miðjunni og óx rosalega mikið. Ég man eftir að hafa horft á fyrstu leikina með honum þar sem hann var fastur að reyna of mikið og tapaði boltanum en óx gríðarlega ásmegin og varð besti djúpi miðjumaður sem við höfum átt. Hann stjórnaði mönnum fyrir framan sig mjög vel og lokaði svæðunum. Við vörðumst vel og hann var risastór partur af því,“ sagði Kári um Aron.

Eiður Smári Guðjohnsen hafði farið fallegum orðum um Aron fyrr í útsendingunni og hélt áfram að hrósa honum, en þeir voru liðsfélagar í landsliðinu til ársins 2016 og átti Aron sinn þátt í því að Eiður Smári fékk að upplifa drauminn um að spila á stórmóti þegar Ísland fór á EM.

Eiður segir Aron vera mikla fyrirmynd fyrir næstu kynslóð fyrirliða íslenska landsliðsins.

„Það er alltaf missir af góðum fótboltamönnum og góðum mönnum sem tengja hópinn saman. Hann er framlengingarsnúra þjálfarans inn í klefa, sem fyrirliði, og ef þú spyrð mig hvernig Aron er þá er hann með bandið og gæti sleppt því að tala en þú myndir samt vita að hann væri fyrirliði af því hann spilar þannig fótbolta af því hann gefur alltaf allt. Svo getum við verið gagnrýninn á spilamennsku og annað en aldrei gagnrýnt hvað hann gefur liðinu og leggur í leikinn fyrir Ísland. Hann er fyrirmynd næstu kynslóðar af fyrirliðum og hefur sýnt okkur nákvæmlega hvað það þýðir að bera fyrirliðabandið fyrir íslenska landsliðið,“ sagði Eiður um Aron í lokin.
Aron var tolleraður í leikslok

Aron var tolleraður í leikslok

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.