Fotbolti.net
16.11.26 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Vinnum ef við höldum hreinu því þeir „eru á eldi“

Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson.

Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.

Ísland er þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa funheitt sóknarpar í Andra Lucasi Guðjohnsen og fyrirliðanum Orra Steini Óskarssyni sem hafa verið iðnir við markaskorun.

Ísak Bergmann Jóhannesson segir að það sé frábær staða að vera með þá tvo í þessum ham.
Orri ekki í keppni við Andra: Óumflýjanlegt að við bætum báðir metið
TENGT EFNI

Orri ekki í keppni við Andra: Óumflýjanlegt að við bætum báðir metið

Lestu um leikinn: Ísland 0 - 0 Lúxemborg
„Við þurfum ekki að hugsa um að skora mörkin. Við þurfum bara að koma boltanum eins oft á þá og hægt er. Við sem er fyrir aftan Orra og Andra. Þeir sjá um að skora. Ef við höldum hreinu þá er mjög líklegt að við vinnum fótboltaleikina því að þeir eru á eldi. Við þurfum bara að reyna að mata á eins mikið og við getum og þeir sjá um rest," sagði Ísak á fréttamannafundi í gær.

Blaðamaður Morgunblaðsins spurði á léttu nótunum hvort það væri enginn rígur á milli þeirra, eins og til dæmis hjá Salah og Mane sem virtust illa við að gefa á hvorn annan hjá Liverpool á sínum tíma.

„Þeir eru alls ekki þannig týpur. Andri lagði upp fyrir Orra á móti Lúxemborg og þetta hefur líka verið öfugt. Orri hugsar númer eitt, tvö og þrjú um liðið og Andri er nákvæmlega eins, vill að liðinu gangi sem best. Auðvitað eru þeir kannski svolítið að spá í að ná þessu markameti. En þeir eru fyrst og fremst liðsmenn og eru eiginlega glaðari þegar hinn skorar, held ég."
Ísak Bergmann Jóhannesson.

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.