Fotbolti.net
18.11.26 - 17:01
Elvar Geir Magnússon

Andri Lucas á allra vörum á Englandi

Andri Lucas skorar og skorar.

Andri Lucas skorar og skorar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenski landsliðsmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen hefur skorað 17 mörk á tímabilinu fyrir land og lið. Hann er í algjöru uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Blackburn Rovers og stuðningsmenn annarra liða í deildinni girnast hann.

Það má slá því föstu að ensk úrvalsdeildarfélög séu farin að beina kastljósi sínu að honum. Andri er skilvirkasti sóknarmaður Evrópufótboltans.
Æstur í að fá Andra Lucas
TENGT EFNI

Æstur í að fá Andra Lucas

David Dunn, fyrrum leikmaður Blackburn, vonar að sitt lið haldi Andra út tímabilið.

„Hann er geggjaður að klára færin. Ég sá snemma að hann yrði mjög góður, ekki bara vegna þess að hann er góður í að klára færin. Hann er feikilega vinnusamur, leiðir línuna, heldur boltanum vel og er alhliða býsna góður," segir Dunn.

„Það er erfitt að toppa markaskorunina hans núna. Ég vona að Blackburn haldi honum í janúar. Ég held að það sé líka gott fyrir hann sjálfan að vera áfram og eiga heilt gott ár. Það muni hjálpa honum í framhaldinu. Ef hann verður svo keyptur í sumar þá er það bara þannig. Heilt gott tímabil myndi gera mikið fyrir hann."

Tom Garratt, vinsæll breskur hlaðvarpsstjórnandi, er æstur í að fá Andra Lucas Guðjohnsen til West Bromwich Albion eins og við fjölluðum um fyrr í dag. Stuðningsmenn Southampton og Birmingham hafa talað á sama hátt.

„Hvílíkur leikmaður sem hann lítur út fyrir að vera," segir Jason Moore sem fjallar um Birmingham í hlaðvarpinu Championship Terrace Talk.

„Ég myndi mjög gjarnan vilja sjá okkur fá Andra Guðjohnsen frá Blackburn. En ég gæti ímyndað mér að Blackburn muni biðja um háa upphæð," segir Louis Harris, stuðningsmaður Southampton.

Football League World segir að Blackburn gæti farið fram á um 15 milljóna punda fyrir Anra Lucas í janúar. Hann skrifaði fyrr á árinu undir samning til ársins 2028 með möguleika á árs framlengingu og því sé enginn þrýstingur á að selja hann.
Andri Lucas á allra vörum á Englandi
Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Andri Lucas á allra vörum á Englandi
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.