Fotbolti.net
16.11.26 - 21:25
Magnús Atlason

Andri Lucas: Sjálfstraustið er í topplagi

Auglýsing
Andri Lucas Guðjohnsen getur ekki hætt að skora.

Andri Lucas Guðjohnsen getur ekki hætt að skora.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland vann 3-0 sigur á Lúxemborg fyrr í kvöld og tryggði sér upp í B-deild þjóðadeildarinnar eftir sigur í riðlinum. Fótbolti.net náði tali af Andra Lucasi Guðjohnsen sem skoraði annað mark leiksins úr víti.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
"Þægilegur sigur í dag, við spiluðum vel og sköpuðum okkur fullt af færum og fáum ekki mark á okkur. Annar mjög jákvæður leikur."

Andri er búinn að taka síðustu tvö vítin hjá liðinu. "Ert þú orðin vítaskytta liðsins?"

Já svo lengi sem ég held áfram að skora þá held ég að ég verði það allavega, þannig vonandi."

Andri hefur verið funheitur með landsliðinu og með Blackburn í ensku Championship deildinni. Verður hann var um umræðuna í kringum sig?

"Jújú, auðvitað þegar maður er að skora mikið, ekkert bara í Championship, þá held ég bara allstaðar í heiminum, í fótbolta. Að þegar framherjar spila vel, þá myndast þessi spenna, það er gaman að fylgjast með framherjum sem að skora."

"Ég er á mjög góðum stað eins og staðan er núna. Sjálfstraustið er í topplagi. Vonandi get ég haldið því áfram."

Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.